Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og námsframboð á Menntavísindasviði Háskóla Íslands : námsmat á fræðasviðum Háskóla Íslands
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmiðið þessarar meistararannsóknar var annars vegar að fá yfirlit yfir hvar í námskeiðum menntavísindasviðs (MVS) Háskóla Íslands (HÍ) er unnið að eða með sjónarmið sjálfbærrar þróunar í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SÞ) eins og þau birtast í kennsluskrá háskólaárið 2019–2020. Hins vegar var sjónum beint að sérverkefni höfundar sem fólst í að greina upplýsingar um námsmat eins og þær birtast í námskeiðalýsingum fræðasviða háskólans. \nRannsóknin er hluti af stærra rannsóknarverkefni sem nær til allra fimm fræðasviða háskólans. Í þessari rannsókn fólst greining gagna í að lesa allar námskeiðslýsingar HVS, hvort sem námskeiðin voru kennd veturinn 2019–2020 eða ekki, og merkja við í greiningartöflu hvort inntak einstakra heimsmarkmiðanna mátti finna í texta námskeiðslýsingar eða hæfniviðmiðum þess. Hins vegar byggja gögn rannsóknarinnar á greiningu námskeiðslýsinga allra sviða HÍ með hliðsjón af sérverkefni höfundar, en gögnum um það af hinum sviðum HÍ var safnað af öllum fimm þátttakendum rannsóknarinnar. \nNiðurstöður gefa vísbendingar um hvaða heimsmarkmiðunum virðist vera unnið markvisst að á menntavísindasviði og hver þeirra þyrftu að fá skýrari athygli. Á menntavísindasviði koma heimsmarkmið nr. 3, heilsa og vellíðan, og 4, menntun fyrir alla, skýrast fram. Niðurstöður greiningar á upplýsingum um námsmat á fræðsviðum háskólans gefa vísbendingar um að víða megi bæta upplýsingar um námsmat. Þá benda niðurstöður til þess að lokapróf séu stór þáttur í námsmati háskólans og að aðkoma nemenda að námsmati sé takmörkuð. Niðurstöður eru ræddar með hliðsjón af stefnu Háskóla Íslands og stefnu Sameinuðu þjóðanna, en einnig með hliðsjón af erlendum rannsóknum. Niðurstöður má nýta við endurskoðun stefnu háskólans í heild sem og hverju fræðasviði við endurskoðun á því hvernig upplýsingar um námskeið eru sett fram í kennsluskrá HÍ.
Source: Skemman
Author: Hildur Hallkelsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066412712
