Work

Í fyrsta skipti fékk ég mikla von : reynsla af jóga og jóga nidra við þunglyndi, kvíða og streitu

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Bakgrunnur: Streita er vandamál sem margir glíma við í daglegu lífi. Langvarandi streita getur valdið kvíða og þunglyndi og bælt ónæmiskerfið. Ástundun jóga og jóga nidra getur dregið úr einkennum þunglyndis, kvíða og streitu. Engin íslensk rannsókn hefur verið birt um áhrif jóga og jóga nidra við þunglyndi, kvíða og streitu. \nTilgangur: Að skoða reynslu af jóga og jóga nidra við þunglyndi, kvíða og streitu með það að markmiði að auka þekkingu og dýpka skilning á viðfangsefninu. \nAðferð: Blandað rannsóknarsnið. Í megindlega hlutanum var DASS spurningalisti lagður fyrir 13 þátttakendur, fyrir og eftir íhlutun sem var 10 vikna jóganámskeið. Þátttakendur voru á aldrinum 19–55 ára. Í eigindlega hlutanum voru tekin 12 viðtöl við sex konur á aldrinum 28–47 ára sem einnig tóku þátt í námskeiðinu. \nNiðurstöður: Niðurstöður megindlega hlutans sýndu að íhlutunin dró úr þunglyndi, kvíða og streitu hjá öllum þátttakendum. Niðurstöður eigindlega hlutans voru greindar í fimm meginþemu: Reynsla af heilsufarsvandamálum, reynsla af áföllum og reynsla af námskeiði, reynsla af jóga og reynsla af jóga nidra. Konurnar sem tóku þátt í eigindlega hlutanum höfðu allar glímt við þunglyndi, kvíða og streitu frá barnæsku. Eftir námskeiðið upplifðu þær minna þunglyndi, kvíða og streitu, aukið andlegt jafnvægi, meiri vellíðan, von og hugarró, auk þess sem þær sváfu allar betur. \nÁlyktun: Jóga og jóga nidra getur verið árangursrík meðferð við þunglyndi, kvíða og streitu. Niðurstöður benda einnig á mikilvægi þess að skoða heilsufarsvandamál einstaklinga með sálræn áföll í huga þar sem mögulega mátti rekja einkenni þátttakenda til áfalla í æsku. Fólk leitar sér aðstoðar við afleiðingum en ekki vegna rót vandans. \nLykilhugtök: jóga, þunglyndi, kvíði, streita, áföll, geðheilbrigði, fyrirbærafræði, megindlegar rannsóknir
Source: Skemman
Author: Edith Ólafía Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066464255
Cites: 66
Cited by:
Related to: 10