Work

Hæfniviðmið á yngsta stigi grunnskóla : hvert erum við komin í dag?

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að skoða framkvæmd og útfærslu námsmats á yngsta stigi grunnskóla. Tekin voru viðtöl við kennara á yngsta stigi um það hvernig þeim gengur að vinna með hæfniviðmið eins og þau eru sett fram í Aðalnámskrá grunnskóla. Kennarar voru spurðir út í hvernig þeir eru að meta nám nemenda sinna, námsframvindu og námsárangur með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Árið 2019 komu fram leiðbeinandi matsviðmið til að styðjast við þegar nemendur klára 4. og 7. bekk. Menntamálastofnun hvetur kennara til þess að nota þessi matsviðmið við lokamatið en skólarnir hafa nokkuð frjálsar hendur við útfærsluna. Áhugavert var því að skoða hvort kennarar á yngsta stigi eru með lokamat og þá hvernig. Er farið eftir matsviðmiðum aðalnámskrár eða setja skólarnir sjálfir fram eigið mat við lok 4. bekkjar? Rannsóknin var eigindleg þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta starfandi kennara á yngsta stigi og tvo stjórnendur í einum grunnskóla. Notast var bæði við snjóbolta- og markmiðsúrtak, en með snjóboltaúrtaki voru viðmælendur beðnir um að benda á kennara sem gætu svarað spurningum rannsakanda. Með markmiðsúrtaki var lögð áhersla á að viðmælendur kenni nemendum á yngsta stigi grunnskóla og/eða komi að námsmati á stiginu. Niðurstöður leiddu í ljós að mikið álag hvílir á kennurum þegar kemur að námsmati og hæfniviðmiðum. Hæfniviðmiðin virðast hafa mikil áhrif á skólastarf og að mati þeirra er lítið samræmi á milli skóla og kennara. Skólarnir hafa lagt mikla vinnu í námsmatið og niðurstöður gefa til kynna að áherslur skólanna hafi verið ólíkar með tilliti til framsetningar hæfniviðmiða, úthlutunar þeirra milli árganga og matsaðferða. Út frá niðurstöðum má sjá að frekari áherslu þarf að leggja á innleiðingu matsviðmiða ef þau eiga að komast í notkun. Margir kennaranna hafa ekki kynnt sér þau og jafnvel vissu ekki af þeim.
Source: Skemman
Author: Sigrún Birna Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066541401
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10