Work

Hvað verður um störfin?: Áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á störf í fjármálastarfsemi

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessa verkefnis er að fá innsýn í áform íslenskra fjármálafyrirtækja um sjálfvirknivæðingu starfa og þau áhrif sem þær breytingar eru líklegar til að hafa á mönnunarþörf fyrirtækjanna á næstu fimm árum. Við rannsóknina var beitt eigindlegri aðferðafræði sem byggir á djúpviðtölum við tíu aðila sem vel þekkja til í íslensku fjármálaumhverfi. \nHelstu niðurstöður benda til þess að fjármálafyrirtækin muni halda ótrauð áfram á braut sjálfvirknivæðingar. Helstu hvatar þess eru aukin samkeppni, aukin áhersla viðskiptavina á auðveldara aðgengi að þjónustu og þörf fyrir lækkun rekstrarkostnaðar fyrirtækjanna. Þessi þróun mun hafa í för með sér talsverð áhrif á mönnunarþörf þar sem sum störf verða lögð niður en önnur skapast. Niðurstöður gefa ekki skýrt til kynna hvaða afleiðingar þetta mun hafa á fjölda starfa á tímabilinu sem var til skoðunar, en ljóst þykir að samsetning starfsmannahópa mun breytast umtalsvert. \n \nLykilorð: Fjórða iðnbyltingin, fjármálafyrirtæki, sjálfvirknivæðing, stefnumiðuð mannauðsstjórnun, þekkingarstjórnun, kortlagning á hæfniþörf.
Source: Skemman
Author: Þorvaldur J. Henningsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066554410
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10