Jafnlaunavottun. Innleiðing, ávinningur, áskoranir og viðhorf þeirra sem hafa innleitt jafnlaunastaðalinn
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknin fjallar um jafnlaunavottun sem var lögfest í ársbyrjun 2018. Ísland er fyrsta landið í heiminum, svo vitað sé, til þess að skylda fyrirtæki til þess að innleiða vottað jafnlaunakerfi og því þótti rannsakanda áhugavert að skoða efnið og bæta við þá þjóðfélagslegu umræðu sem hefur verið í samfélaginu um hvernig stjórnendur upplifa það að innleiða jafnlaunavottun. \nRannsóknin er eigindleg rannsókn og tekin voru viðtöl við átta einstaklinga sem allir höfðu það sameiginlegt að hafa tekið þátt í eða stýrt innleiðingu á jafnlaunastaðlinum. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þá áskorun og ávinning sem stjórnendur upplifðu ásamt viðhorfi þeirra til jafnlaunavottunar eftir að hafa innleitt jafnlaunastaðalinn. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að margvíslegur ávinningur skapast þegar fyrirtæki hlýtur jafnlaunavottun. Er þar helst að nefna betri yfirsýn yfir launauppbyggingu, meira gagnsæi, meiri samfélagsábyrgð, aukin starfsánægja, stolt meðal starfsmanna o.fl. Við innleiðingu á jafnlaunastaðlinum geta komið upp ýmsar áskoranir og þarf sérstaklega að huga að breytingaferlinu, sjá til þess að nauðsynlegar auðlindir séu til staðar, eins og sérfræðikunnátta, innviðir fyrirtækisins, tækni og fjármagn. Viðmælendum þótti það nokkur áskorun að þekkja staðalinn vel, útfæra og flokka störfin ásamt því að setja viðmið og ákvarða vægi þeirra. Viðhorf viðmælenda til jafnlaunavottunar er almennt jákvætt og ýtir hún undir traust og ímynd fyrirtækisins. \nRannsakandi vonar að rannsóknin geti verið gagnleg og haft gott upplýsingagildi fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem hyggja á jafnlaunavottun.
Source: Skemman
Author: Auður Böðvarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066849885
