Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Stríðsátök, hamfarir, ofsóknir og mannréttindabrot eru meðal annars ástæður þess af hverju fólk neyðist til að flýja heimaland sitt. Flóttaferlið sjálft getur reynst hættulegt og er flóttafólk útsett fyrir ofbeldi, mismunun og fordómum. Konur eru þá sérstaklega berskjaldaðar fyrir bæði mansali sem og ýmis konar ofbeldi á meðan á ferðalaginu stendur. Þegar til aðsetulands er komið eiga þær í hættu á að lenda í félagslegri einangrun, fordómum og töpun á sjálfsmynd. Kynbundna ofbeldið sem konur lenda í getur einnig haft miklar sálrænar og andlegar afleiðingar á borð við kvíða, þunglyndi og áfallastreituröskun. Mikilvægt er því að halda utan um þær konur sem neyðast til að flýja heimkynni sín og veita þeim bæði vernd og stuðning á meðan á flóttaferlinu stendur sem og í aðsetulandi. Stefnur, löggjöf og eftirfylgd í löndum skiptir höfuðmáli fyrir vernd þessa hóps til þess að sporna við ofbeldi og andlegri vanlíðan í flóttaferlinu. Í aðsetulandi þurfa þær svo á stuðningi og þjónustu að halda til þess að hjálpa þeim við aðlögun í nýju og framandi samfélagi til að koma í veg fyrir einangrun. Mikilvægt er því að skoða þennan hóp sérstaklega því þarfir þeirra eru aðrar en hjá körlum. Félagsráðgjafar sem vinna með fjölmenningu þurfa að hafa þekkingu á málefnum flóttakvenna sem og þeim kenningum og nálgunum sem henta í starfi með þeim. Móttökulönd þurfa að hafa skýrar stefnur og löggjöf sem aðstoða við farsæla móttöku og aðlögun innflytjenda og þar á meðal flóttakonur. Úrræði þurfa að vera fyrir hendi sem hægt er að nýta til að aðstoða þennan hóp á faglegan máta og gæta hagsmuna þeirra.
Source: Skemman
Author: Guðrún Mira Ragnarsdóttir Kojic
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Migration and Exile Studies
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066996216
