The Joint Action of the Transcription Factors BLIMP1 and EZH2 on Selected Targets in Waldenström‘s Macroglobulinemia
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Waldenströms sjúkdómur (e. Waldenströms macroglobulinemia, WM) er tegund eitilfrumukrabbameins sem lýsir sér með beinmergsíferð af plasma- og eitilfrumum. Yfir 90% WM sjúklinga bera stökkbreytingu í myeloid differentiation primary response 88 (MYD88) geninu sem veldur því að MYD88 er sívirkt. Umritunarþættirnir B-lymphocyte-induced-maturation protein 1 (BLIMP1) og enhancer of zeste homolog 2 (EZH2) eru þekktir miðlarar á genatjáningu margvíslegra gena. Fyrsta markmið verkefnisins er að kanna mögulega samverkan BLIMP1 og EZH2 á markgen í WM sjúkdómi með notkun klögugena (e. reporter genes). Einnig var hvötunarvirkni EZH2 hömluð með tvennskonar hindrum til þess að kanna hvort BLIMP1-miðluð bæling á markgen sé háð hvötunarvirkninni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að MYD88 stökkbreytingin stuðlar að lifun WM frumna og þar að auki er tjáning BLIMP1 og EZH2 mikilvæg fyrir lifun krabbameinsfrumna. Annað markmið verkefnisins er að kanna hæði BLIMP1 og EZH2 tjáningar á MYD88 boðferilinn með flúrskinlitun (e. immunofluorescence) og meta hvort hindrun á MYD88 virkni hefur áhrif á lífvænleika WM frumna. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að BLIMP1 miðlaði bælingu á markgen sín óháð hvötunarvirkni EZH2 og hafði hvötunarvirkni EZH2 ein og sér áhrif á tjáningu markgensins. Ennfremur kom í ljós að hindrun á MYD88 boðferlinum leiddi til þess að tjáning EZH2 minnkaði til muna í WM frumulínum og hindrun á MYD88 virkni hafði áhrif á WM frumurnar.
Source: Skemman
Author: Árný Björg Ósvaldsdóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Hematology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067088175
