Work

Karlmennska, karlar og jafnrétti. Karlmennskuhugmyndir í frásögnum karla á Twitter og viðhorf karla til jafnréttis

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er karlmennskuhugmyndir og viðhorf karla til jafnréttis. Megintilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á karlmennskuhugmyndir sem birtust í frásögnum karla á Twitter og hvað einkenndi viðhorf karla sem ekki skilgreina sig sem femínista til jafnréttis. Niðurstöðurnar voru settar í samhengi við kenningar um kynjakerfi, karlmennskur og karlréttindasjónarmið. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem gögnin samanstóðu af viðtölum við sex karla og frásögnum á Twitter sem voru þema- og orðræðugreind auk þess sem verklagi grundaðrar kenningar var beitt til að draga fram helstu niðurstöður. \nNiðurstöðurnar sýndu margvísleg sjónarmið meðal karla gagnvart karlmennsku og karlmennskuhugmyndum. Á meðan sumir vildu brjótast undan oki þeirra töldu aðrir femínista hafa eyðilagt karlmennsku og vera í stríði gegn körlum. Niðurstöður vörpuðu ljósi á tengsl sexisma, eðlishyggju og heterósexisma við ráðandi karlmennskuhugmyndir sem birtust í frásögnunum á Twitter, sem höfðu íþyngjandi áhrif á karla. Þá bentu niðurstöður til þess að frásagnir karla á Twitter gefi tilefni til að trúa að til staðar sé frjór jarðvegur fyrir jákvæða karlmennsku sem er styðjandi við jafnrétti þar sem frásagnirnar í heild samræmdust femínískum aktívisma. \nViðhorf viðmælenda í viðtalsrannsókn einkenndust hins vegar af karlréttindasjónarmiðum, efasemdum um karllæg yfirráð kynjakerfisins, andstöðu við femínista og skoðunum byggðum á tilfinningum eða fákunnáttu. Viðmælendur skilgreindu sig sem jafnréttissinna þótt fátt í viðhorfum þeirra teldist styðjandi við jafnrétti né til þess fallið að bæta stöðu jaðarsettra karla. Einkenndust viðhorf viðmælenda af orðræðu sem festir frekar í sessi kynjamisrétti og íhaldssamar karlmennskuhugmyndir. \nLykilorð: Kynjafræði, kynjakerfi, karlmennska, #karlmennskan, femínismi, karlréttindasinnar, andspyrna
Source: Skemman
Author: Þorsteinn V. Einarsson
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067286234
Cites: 21
Cited by:
Related to: 10