Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvort munur sé á málfærni íslenskra barna sem greind hafa verið með heilaáverka samanborið við jafnaldra þeirra sem ekki hafa hlotið slíka áverka. Þátttakendur voru börn fædd árið 2007 sem hlotið höfðu áverka fyrir fimm ára aldur. Í rannsóknarhópi voru 13 börn greind með heilaáverka og í samanburðarhópi voru 13 börn greind með væga áverka fyrir neðan háls og utan miðtaugakerfis. Færni barnanna var borin saman með Told-2P málþroskaprófi, Setningafræðiprófi Sigríðar Magnúsdóttur og Sigríðar A. Þórðardóttur auk þess sem skoðað var hvort munur væri á upplifun foreldra á málþroska þeirra, námslegri eða félagslegri færni. \nNiðurstöður fyrir Told-2P málþroskapróf sýndu að bæði á prófinu í heild og á öllum fimm prófhlutum þess fær rannsóknarhópurinn lægra meðaltal en samanburðarhópurinn. Á mælitölu tals, mælitölu merkingarfræðiþáttar og mælitölu hljóðkerfisþáttar var um marktækan mun að ræða milli hópanna tveggja. Á málþroskatölu, mælitölu hlustunar og mælitölu setningafræðiþáttar var ekki um marktækan mun að ræða milli hópanna. Þó má sjá að dreifing þeirra er mjög ólík á málþroskatölunni, þar sem börnin í rannsóknarhópnum raðast mun neðar en börnin í samanburðarhópnum. Niðurstöður undirprófa málþroskaprófsins sýndu að marktækur munur er á milli hópanna á undirprófunum Orðskilningur og Framburður. Á báðum undirprófunum er dreifing hópanna ólík og algengara að börn í rannsóknarhópnum séu að fá lægri mælitölur en börn í samanburðarhópnum. Ekki kom fram munur á milli hópanna á Setningafræðiprófinu, hvorki á prófinu í heild né einstökum setningagerðum þess. Mat foreldra á málþroska barna sinna, námslegri og félagslegri færni var á heildina litið mjög líkt milli beggja hópa. Foreldrar í báðum hópum mátu almennt færni barna sinna í samræmi við, eða betri en færni jafnaldra. Þá koma fram vísbendingar um að aldur barns við áverka geti haft áhrif á útkomu þeirra á þann veg að því eldri sem börnin eru þegar þau hljóta heilaáverka, því betri verði útkoma þeirra á málþroskatölu á Told-2P sem og á mælitölu tals, merkingarfræðiþáttar og setningafræðiþáttar. Ekki var um slík tengsl að ræða á Setningafræðiprófinu, mælitölu hlustunar eða mælitölu hljóðkerfisþáttar. Þessar niðurstöður benda til þess að börn sem slasast þegar þau eru yngri séu líklegri til að sýna slakari færni á ákveðnum þáttum málsins en þau börn sem eru orðin eldri þegar þau slasast. \nÞrátt fyrir að ekki komi fram marktækur munur á öllum þáttum gefa þessar niðurstöður ákveðnar vísbendingar um að börn sem hljóta heilaáverka á máltökualdri búi yfir slakari málfærni en jafnaldrar þeirra sem ekki hafa hlotið slíka áverka og þá sérstaklega í máltjáningu, merkingarfræði og framburði.
Source: Skemman
Author: Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir 1982
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keyword: intellectuals
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067369541
