Work

Mat grunnskólastarfsfólks á kennslu og innleiðingu geðræktarnámsefnisins „Leikni til lífs“

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Andleg vanlíðan meðal barna og unglinga virðist vaxandi á heimsvísu og hefur umræðan um möguleg úrræði því aukist með árunum. Sýnt þykir að markviss kennsla í félags- og tilfinningafærni og/eða geðrækt í grunnskólum styðji við verndandi þætti í lífi barna og ungmenna og stuðli þannig að aukinni velferð þeirra í komandi framtíð. Því hefur sjónum verið beint að geðrækt í skólastarfi og markvissri kennslu í félags- og tilfinningafærni. Námsefni ætlað íslenskum grunnskólanemendum á því sviði er þó af skornum skammti og hefur skólasamfélagið því kallað eftir úrbótum sem mikilvægt er að bregðast við. Í því ljósi var markmið þessarar rannsóknar að meta reynslu starfsfólks skóla af íslenskri þýðingu og staðfærslu námsefnisins „Leikni til lífs“ og hagkvæmni innleiðingar þess í íslenskum skólum. Markmið námsefnisins er að efla færni í tilfinningastjórn og samskiptum og er ætlað unglingum á aldrinum 12-19 ára. \nRannsóknin byggir á eigind- og megindlegum aðferðum. Þátttakendur voru fimm konur sem starfa í tveimur grunnskólum á Íslandi sem kennarar og/eða námsráðgjafar. Annar skólinn er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu og hinn á Norðausturlandi. Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl og matslisti lagður fyrir þátttakendur og var tölfræðilegri greiningu ásamt þemagreiningu beitt við úrvinnslu gagna. Helstu niðurstöður voru að kennarar Leikni til lífs lýstu yfir ánægju sinni við að innleiða tímabært námsefni í geðrækt í grunnskóla hér á landi og að undirbúningur þeirra til kennslu Leikni til lífs hafi einkennst af jákvæðni, stuðningi og hvatningu. Einnig leiddu þær í ljós að íslenskri þýðingu og framsetningu Leikni til lífs námsefnisins virðist nokkuð ábótavant. Þátttakendur voru gagnrýnir á orðaval íslensku þýðingarinnar, sem mögulega gæti gert kennurum sem nota námsefnið erfitt fyrir að tileinka sér og miðla því til nemenda. Takmarkaður skilningur nemenda á þýðingunni hafi áhrif á athygli, hlustun og virkni þeirra í kennslustundum. Það komi niður á tileinkun þeirra á námsefninu og dragi þar með úr skilvirkni og hagnýtingu námsefnisins. Þrátt fyrir það undirstrikuðu kennarar Leikni til lífs mikilvægi og gagnsemi námsefnisins meðal nemenda á ótal sviðum til skemmri og lengri tíma. Þessar niðurstöður styðja við mikilvægi rannsókna af þessu tagi við innleiðingu nýrra aðferða í skólastarfi og veita gagnlegar upplýsingar um hvernig bæta má þýðingu og staðfærslu „Leikni til lífs“ til notkunar í íslenskum grunnskólum.
Source: Skemman
Author: Ásdís Jóna Björnsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067371126
Cites: 65
Cited by:
Related to: 10