Work

Meðferðarúrræði barna og unglinga með vímuefnavanda á Íslandi

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að kanna stöðu þekkingar í úrræðum barna og unglinga með vímuefnavanda á Íslandi. Tilgangurinn er að kortleggja og skoða hvaða úrræði standa þessum hópi til boða ásamt því að kanna hvaða gagnreyndu aðferðir og hugmyndafræði er verið að nota. Fjallað er um eðli og umfang vímuefnavanda barna og unglinga ásamt nýlegum rannsóknum á taugaþroska þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að vímuefnameðferð barna- og unglinga er erfitt viðfangsefni því að ungmennum er í flestum tilvikum skikkuð í meðferð af frumkvæði forsjáraðila eða annarra. Sökum þessa er endurkomutíðni há. Nýlegar rannsóknir hafa lagt áherslu á taugaþroska ungmenna og þar er varpað ljósi á að heilastarfsemi barna og unglinga er frábrugðin fullorðnum. Í gegnum tíðina hafa vímuefnameðferðir barna og unglinga fengið að láni úrræði og hugmyndafræði úr sama málaflokki nema þann sem snýr að fullorðnum. Sannkölluð vitundarvakning er hafin þar sem lagt er áherslu á hvað hentar hverju barni útaf fyrir sig. \nFarið er yfir tölfræði frá Barna- og fjölskyldu stofu ásamt núgildandi lögum og reglugerðum sem snerta ungmenni með vímuefnavanda. Að því loknu verða mismunandi nálganir skoðaðar út frá því hvað hefur verið að virka erlendis samkvæmt nýjustu rannsóknum. Meðferðarsvið Barna- og fjölskyldustofu stýrir og heldur utan um vímuefnameðferðir fyrir börn- og unglinga á Íslandi. Barna- og fjölskyldustofa stendur á tímamótum vegna nýlegra lagabreytinga og yfirvofandi lagabreytinga hvað varðar málefni barna og unglinga. Samþætting þjónustu við börn er þar efst á baugi ásamt breytingum á barnaverndarlögum sem mun ná til og breyta umhverfi og þjónustu við börn með vímuefnavanda. Ritgerðin varpar ljósi á skort á nýlegum rannsóknum hjá málarflokknum ásamt ítarlegum upplýsingum um stöðu mála á Íslandi. Tiltekt, betrumbæting og kerfisbundnar innleiðingar á gagnreyndum aðferðum er í vinnslu hjá Barna- og fjölskyldustofu og munu áhrif þess leiða seinna í ljós. Helstu niðurstöður þessarar ritgerðar eru að ýmsar tegundir sálfélagslegra inngripa eru hvað mest notaðar á Íslandi. ART aðferðin leiðir þar, fremst í flokki. Erlendis er það mjög misjafnt hvað er lagt áherslu á en sálfélagsleg inngrip leiða þó málaflokkinn. Algengast er að finna einhverja tegund af hugrænni atferlismeðferð, fjölkerfameðferð og fjölskyldumeðferð.
Source: Skemman
Author: Erna Norðdahl
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067560091
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10