Work

Moderating the effects of post-traumatic stress on depression and anxiety: The experience of post-traumatic growth following a cancer diagnosis. A longitudinal study among men with prostate cancer

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Það er algengt að fólk upplifi áfallatengd streitueinkenni í kjölfar krabbameinsgreiningar og áfallatend streitueinkenni geta jafnframt aukið líkur á þunglyndi og kvíða. En margir upplifa einnig jákvæðar breytingar í kjölfar áfalls (e. post-traumatic growth-PTG), líkt og nánari tengsl við fjölskyldu og vini og að sjá ný tækifæri í framtíðinni. Þessi rannsókn kannaði hvort áfallatengd streitueinkenni hefðu minni áhrif á þunglyndi og kvíða hjá þeim einstaklingum sem upplifðu meiri jákvæðar breytingar í kjölfar krabbameinsgreiningar. Þátttakendur voru 60 karlmenn sem höfðu nýlega greinst með blöðruhálskirtilskrabbamein. Flestir þátttakendur svöruðu grunnlínu spurningalista innan við tveimur mánuðum eftir að hafa hlotið greiningu, sem mældi áfallatengd streitueinkenni, þunglyndi og kvíða. Þá svöruðu þátttakendur eftirfylgni spurningalista þremur mánuðum síðar sem mældi þunglyndi, kvíða og jákvæðar breytingar í kjölfar áfalls. Niðurstöður marghliða aðfallsgreiningar (þar sem stjórnað var fyrir kvíða og þunglyndi á grunnlínu) leiddu í ljós að samvirkni á milli áfallatengdra streitueinkenni og jákvæðra breytinga spáðu marktækt fyrir um þunglyndi og kvíða (p < 0,05). Þeim mun meiri jákvæðar breytingar sem þátttakendur upplifðu, þeim mun minni áhrif höfðu áfallatend streitueinkenni á þunglyndi og kvíða. Niðurstöður rannsóknarinnar eru mikilvæg viðbót við fyrri rannsóknir á jákvæðum breytingum í kjölfar áfalls, sérstaklega þar sem litið er á jákvæðar breytingar sem verndandi þátt (e. stress buffer). Niðurstöðurnar benda einnig til þess að íhlutun sem felur í sér að finna jákvæðar afleiðingar áfalla (e. post-traumatic growth) geti verið gagnleg fyrir karlmenn sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein.
Source: Skemman
Author: Unnur Vala Guðbjartsdóttir 1983
Language: Icelandic
Subfield: Oncology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067561334
Cites: 52
Cited by:
Related to: 10