Work

Námsmatsmenning skiptir máliUpplifun kennara og nemenda af námsmati og endurgjöf

Year: 2022
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir benda til þess að innleiðing leiðsagnarnáms hafi ekki gengið sem skyldi og er skýringin m.a. sú að áhersla sé lögð á tæknilega útfærslu (e. assessment for learning) á kostnað þeirrar námsmatsmenningar (e. assessment culture) sem til þarf. Hérlendis skortir rannsóknir á námsmati á framhaldsskólastiginu og fáar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum námsmatsmenningar á reynslu nemenda og kennara af námsmati. Markmið rannsóknarinnar er að öðlast skilning á því hvernig námsmatsmenning mótar reynslu kennara og nemenda af námsmati. Rannsóknin var unnin með blönduðu rannsóknarsniði (e. mixed method design). Spurningalisti var lagður fyrir nemendur og kennara í þremur íslenskum framhaldsskólum og þeim síðan fylgt eftir með rýnihópaviðtölum. Notað var markvisst úrtak (e. purposive sampling) og voru þátttökuskólar valdir með hliðsjón af námsmatsstefnu og reynslu af innleiðingu á leiðsagnarnámi. Niðurstöður sýna að þátttaka og ábyrgð nemenda á framkvæmd námsmats er takmörkuð. Einkenni lærdómsmiðaðrar námsmatsmenningar, sem er forsenda leiðsagnarnáms, birtist meðal annars í persónulegum og afslöppuðum skólabrag þar sem ríkja jákvæð tengsl á milli kennara og nemenda. Prófa- og einkunnamiðuð námsmatsmenning endurspeglaðist hins vegar í yfirborðslegri nálgun nemenda í námi og neikvæðri afstöðu til þátttöku nemenda í námsmati. Út frá niðurstöðunum og áherslum námskrár á hæfni og lýðræðislega starfshætti, má álykta að huga þurfi mun betur að námsmatsmenningu sem byggir á þátttöku nemenda í námsmati. Niðurstöður sýna jafnframt að leita þarf frekari leiða til að auka hlutdeild og ábyrgð nemenda og þannig stuðla að aukinni námsmatshæfni (e. assessment literacy) kennara og nemenda.
Language: English
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067644408
Cites: 167
Cited by:
Related to: 10