Work

Móttaka flóttafólks og hælisleitenda. Áherslur í hjúkrun

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Fjöldi fólks á flótta í heiminum er gríðarlegur og hefur ekki verið meiri frá seinni heimstyrjöldinni. Mikilvægt er að móttaka flóttafólks og hælisleitenda í íslensku heilbrigðiskerfi aðstoði þá við að aðlagast íslensku samfélagi, stuðli að geðheilbrigði og gæti samræmis milli einstaklinga. Tilgangur samantektarinnar er að koma auga á geðheilbrigðisþarfir flóttafólks og hælisleitenda, kanna hvaða þættir geta hindrað aðgengi að heilbrigðisþjónustu og hverju heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera vakandi fyrir í því sambandi. \nSkoðaðar voru rannsóknir, skýrslur, verklagsreglur og samningar sem snéru að málefnum flóttafólks og hælisleitenda, almennt og á Íslandi. Efnið tók tillit til allra aldurshópa og kynja. Megin niðurstöður samantektarinnar sýndu að flóttafólk og hælisleitendur þjást frekar af geðröskunum á borð við þunglyndi, kvíðaröskun og áfallastreituröskun heldur en almenningur móttökulands. Helstu orsakavaldarnir voru áföll í heimalandi og á flótta, og streituvaldar eftir að komið var til móttökulands. Meðal barna og unglinga höfðu áföll og streituvaldar einnig áhrif á námsgetu og þroska. Niðurstöður sýndu einnig fram á mun á algengi milli kynja og mismunandi geðraskanir eftir aldri. Ríkisstjórn og sveitarfélög Íslands hafa mótað skýrar stefnur þegar kemur að móttöku kvótaflóttafólks. Samanborið við nágrannaþjóðir voru upplýsingar um þjónustu hælisleitenda ábótavant. Hvetjandi og hindrandi þættir skiptu máli þegar kom að aðgengi. Aðalhindranir tengdust fjárhag, tungumáli, lagalegri stöðu og skorti á upplýsingum og heilsulæsi. Með vaxandi fjölbreytni í íslensku samfélagi reyndist mikilvægt að menntun heilbrigðisstarfsfólks tryggði menningarhæfni og fordómaleysi í starfi. \nLjóst er að frekari rannsókna er þörf á langtíma geðheilsu flóttafólks eftir að hafa dvalið í móttökulandi til lengri tíma. Eins þarf að rannsaka gæði þjónustu á Íslandi betur og auka áherslu á menningarfræðslu í námi heilbrigðisstarfsfólks. \nLykilorð: flóttafólk, hælisleitendur, geðheilsa, heilbrigðisþjónusta og menningarhæfni
Source: Skemman
Authors: Sylvía Rós Bjarkadóttir 1992, Þuríður Skarphéðinsdóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7067729869
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10