Work

Máltilfinning

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð hefur máltilfinning verið skilgreind sem hugvitundartilfinning (e. metacognitive feeling). Hún er eins konar málfærni sem vinnur úr þekkingu tungumálsins í daglegu lífi. Hugvitund (e. metacognition), fæðingarstaður máltilfinningar, er mikilvæg færni mannsins til að ráða yfir málkunnáttu. Tvö líkön (tvíferlis-/forsagnarlíkan), þrjú kerfi (kerfisbundið/reynslubundið/sameinað kerfi) og vitsmunaferli (e. cognitive process) eru notuð til að útskýra úrvinnslu máltilfinningar. Auk þess eru þekkingargeðhrif (e. epistemic emotions) og geðbrigðaupplifun (e. emotional experience, affective experience) umræðuefni til að lýsa tilfinningalegri upplifun þegar máltilfinning vinnur stöðugt í heilann. Máltilfinningarblöndun er eins konar samsetning máltilfinningar í heilanum. Hún leggur áherslu á fjölbreytta möguleika í málnotkun. Skref í vitsmunaferlinu og dæmi úr mismunandi tungumálum útskýra fyrirbæri sem birtast í blönduninni. Hins vegar eru takmarkanir og áskoranir til staðar í þessari ritgerð. Nokkrar spurningar á þessu rannsóknasviði vantar ennþá upplýsingar og ítarlegar útskýringar.
Source: Skemman
Author: Hui Yun Yang
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7070064173
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10