Work

„Pabbarnir koma með en þá eru það mömmurnar sem tala“ : feður í foreldrahlutverkinu í grunnskólanámi barna sinna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Samstarf foreldra við skóla er talið gegna lykilhlutverki í farsælli skólagöngu barna þeirra. Því er mikilvægt að uppalendur barna taki þátt og stuðli að góðum samskiptum sín á milli. Í þessari rannsókn er farið ofan í saumana á upplifun feðra af íslensku grunnskólasamfélagi barna þeirra. Íslenskt skólasamfélag er oft talið einsleitt þar sem meirihluti stéttarinnar eru konur. En rauði þráður rannsóknarinnar er að skoða hvernig feður upplifa samskipti við grunnskóla barna þeirra ásamt því hvernig þeir meta eigið framlag til skólasamfélagsins. Þá er einnig kannað hvert feður telja hlutverk sitt vera í skólagöngu barna sinna og hvert viðhorf þeirra er til þeirra krafna sem gerðar eru til þeirra. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á upplifun feðra af eigin foreldravirkni í íslensku skólastarfi og hvernig þeir takast á við hlutverk sitt sem foreldri barns á grunnskólastigi. \nRannsókn þessi er byggð á eigindlegri aðferðafræði en notast var við hálfopin viðtöl sem voru tekin við níu íslenska feður, sem telja sig vera virka í skólasamfélagi barna sinna. Þessi viðtöl voru tekin á árunum 2017-2018 og eru hluti af gagnabanka í stærra verkefni, sem styrkt var af Jafnréttissjóði Íslands, og nefnist Virkni, val og skyldur foreldra á íslenskum menntavettvangi. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að konur sinni fremur formlegri þátttöku í skólastarfinu en feður. Af gögnum rannsóknarinnar var ljóst að feðurnir höfðu hagsmuni og velferð barna sinna að leiðarljósi og voru virkir í skólastarfinu. Hins vegar sýna niðurstöðurnar að í flestum tilfellum sinna mæður barnanna þáttum skólastarfsins meira en feðurnir, þ.e. þær aðstoða við heimanám, og taka almennt meiri þátt í viðburðum á vegum skólans. Í viðtölunum við feðurna mátti sjá að allir vildu þeir eyða meiri tíma með börnum sínum og taka meiri þátt í uppeldi þeirra. Þeir töldu sig þó finna fyrir samfélagslegum hindrunum hvað það varðaði, t.d. í formi vinnuálags á starfsvettvangi
Source: Skemman
Author: Kolbrún Þórhildur Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7070287552
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10