Work

Óframkvæmd hjúkrun. Fræðileg samantekt

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Óframkvæmd hjúkrun (missed nursing care) er algeng og á sér stað daglega á bráðadeildum sjúkrahúsa. Með hugtakinu óframkvæmd hjúkrun er átt við hjúkrun sm er seinkað, sleppt að hluta til eða alveg. \nTilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að varpa ljósi á óframkvæmda hjúkrun á bráðadeildum sjúkrahúsa. Með fræðilegri samantekt er svara leitað við eftirfarandi spurningum: Hvað er óframkvæmd hjúkrun? Hvaða hjúkrunarmeðferðir eru það helst sem eru ekki framkvæmdar? Hverjar eru orsakir og afleiðingar óframkvæmdrar hjúkrunar? Leitað var heimilda í gagnasöfnun Scopus, PubMed og Google Scholar, auk þess sem heimildaskrár þeirra heimilda sem fundust voru notaðar til heimildaleitar. \nNiðurstöður leiddu í ljós að óframkvæmd hjúkrun er alvarlegt vandamál á bráðadeildum sjúkrahúsa. Algengast er að grunnþáttum hjúkrunar sé sleppt svo sem að snúa sjúklingum, eftirlit með næringu, hreinlæti og hvatning til hreyfingar. Helstu orsakir óframkvæmdrar hjúkrunar eru: 1) skortur á samskiptum, 2) ófullnægjandi mönnun, 3) skortur á ðföngum, 4) truflanir, 5) fjölverkavinnsla, 6) tímalengd hjúkrunarmeðferða, 7) „ekki í mínum verkahring“ heilkennið, 8) ófullnægjandi úthlutun verkefna, og 9) vani. Afleiðingarnar geta verið allt frá því að vera lítilvægar og ósýnilegar upp í að valda miklum skaða eða dauða sjúklinga. Algengar afleiðingar eru fjölgun legudaga, seinkun á útskrift og neikvæðar afleiðingar fyrir sjúkling. \n \nLykilorð: bráðadeild, óframkvæmd hjúkrun, sjúkrahús
Source: Skemman
Authors: Jóhanna Kristófersdóttir 1975, Sigurbjörg Gunnarsdóttir 1972
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7070349707
Cites: 37
Cited by:
Related to: 10