Work

Reynsla fólks á landsbyggðinni af krabbameinsmeðferð fjarri heimabyggð

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Á Íslandi fer einstaklingum með krabbamein og þeim sem eru á lífi eftir að hafa fengið krabbamein fjölgandi. Áætlað er að um þriðjungur þeirra sem greinast með krabbamein á Íslandi sé búsettur utan höfuðborgarsvæðisins. Sérhæfð þjónusta er að mestu leyti bundin við höfuðborgarsvæðið og stór hluti krabbameinsmeðferða er einungis veittur á Landspítala. Því þurfa margir að ferðast endurtekið langar vegalengdir og dvelja oft að heiman til að sækja sérhæfða þjónustu. Búsetu á landsbyggð fylgja áskoranir sem aukið geta líkamlegt og sálfélagslegt álag í veikindaferlinu. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar öðlist innsýn í reynslu þeirra sem fá krabbameinsmeðferð fjarri heimabyggð til að geta veitt þeim viðeigandi stuðning. Markmið: Að lýsa reynslu einstaklinga á landsbyggðinni af krabbameinsmeðferð fjarri heimabyggð. \nAðferð: Eigindleg rannsókn, unnin út frá fyrirbærafræðilegri nálgun. Úrtakið var tilgangsúrtak sjö þátttakenda sem lokið höfðu krabbameinsmeðferð fjarri heimabyggð hálfu til fimm árum áður. Gagna var aflað með óstöðluðum viðtölum á tímabilinu október 2018 til janúar 2019. \nNiðurstöður: Í reynslunni birtust erfiðar breytingar sem almennt fylgja greiningu og meðferð krabbameins en að auki komu fram áskoranir sem voru sérstaklega tilkomnar eða undir áhrifum þess að sækja þurfti krabbameinsmeðferð fjarri heimabyggð. Umbyltingin sem varð á lífinu við greiningu varð af þeim sökum ýktari. Einnig komu fram styðjandi þættir sem fólgnir voru í að vera hluti lítils samfélags. Það sem gefur reynslu þessa hóps krabbameinssjúklinga sérstöðu endurspeglast í fjórum þemum sem voru lýsandi fyrir reynsluna: a) Að kollsteypast og rísa upp á ný, b) Fjölskyldan í brennidepli, c) Reiptog milli heimilis og meðferðarstaðar og d) Að nálgast stuðning og flétta saman stuðning heima og að heiman. \nÁlyktun: Veita þarf einstaklingum í krabbameinsmeðferð sem búa á landsbyggðinni og sækja meðferð fjarri heimabyggð sérstaka athygli og stuðning. Þörf er á sérþjónustu sem kemur til móts við sérstakar aðstæður þeirra og miðar að aukinni samfellu í þjónustu.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Oncology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7070892513
Cites: 77
Cited by:
Related to: 10