Work

Sköpunarsmiðja í leikskóla : samskipti barna í vinnu með snjalltækni

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Meistaraverkefni þetta er rannsókn, sem unnin var á deild elstu barna leikskóla á Akureyri haustið 2018, nánar tiltekið í mars fram í júní sama ár. Börnin eru níu, sem tóku þátt í rannsókninni og öll eru þau fædd árið 2012. Fyrirkomulagið var á þá leið, að tvisvar í viku hitti rannsakandi börnin í smiðjum, sem stóðu klukkustund í senn. Smiðjurnar urðu sex talsins og náðu því yfir þrjár vikur. \nRannsóknin miðaði að því að skoða samskipti barnanna meðan á verkefninu stóð, m.a. félagsfærni, sjálfstraust og samvinnu þeirra í vinnu með tækni. Börnin fengu frjálsar hendur til að skapa umhverfi og sögusvið fyrir snjalltækin Blue-bot og Cubelets en einnig með Lego-kubbum og tilbúnum sögupersónum, sem þau skópu sér sjálf meðan á smiðjunum stóð. \nEnn sem komið er fer lítið fyrir forritun barna á leikskólaaldri. Vonandi verður breyting þar á. Fátt ætti að vera því til fyrirstöðu. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: \n•\tHvað einkennir samskipti fimm ára barna, þegar þau vinna með Blue-bot og Cubelets? \n•\tHvernig birtist sjálfstraust barna í vinnu með Blue-Bot og Cubelets? \nNiðurstöður sýna að forritunarvinna sem þessi kallar á aukin samskipti, samvinnu og málamiðlanir barna sín á milli. Samvinna barnanna með snjalltækjunum blés nýju lífi í leik og nám þeirra. Börnin voru iðin og áhugasöm um snjalltækin og voru fljót að tileinka sér þessa nýju tækni. Greina mátti framfarir hjá þeim öllum, bæði hvað varðar vinnu þeirra með tækin og samskiptafærni sín á milli. Jafnframt óx börnunum sjálfstraust eftir því sem sköpunarsmiðjunum fjölgaði og urðu ófeimnari við það að prófa sig áfram.
Source: Skemman
Author: Herdís Ólöf Pálsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071077193
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10