Work

Stjórnun breytinga í kjölfar samruna í stórum fyrirtækjum og stofnunum

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Megin tilgangur rannsóknarinnar er að gera athugun á framkvæmd breytinga og aðferðum í samruna stórra fyrirtækja og stofnana hér á landi. Rakin eru ýmis sjónarmið um stjórnun breytinga, þörf fyrir breytingastjórnun, þátttakendur og hlutverk þeirra í breytingaferlinu, viðbrögð starfsfólks og andstöðu þess við breytingar ásamt fyrirtækjamenningu og hvað þarf til þess að ná fram árangursríkum breytingum. Framkvæmd við stjórnun breytingaferla er skilgreind og hvernig henni er háttað hjá skipulagsheildum. \nEigindleg rannsóknaraðferð var notuð þar sem gerð var viðtalsathugun og rætt við tíu sérfræðinga og stjórnendur hjá fjórum fyrirtækjum og einni stofnun sem öll teljast stór á íslenskan mælikvarða. Í viðtölunum er reynt að ná fram mati viðmælenda og varpa ljósi á hvaða aðferðir skipulagsheildir eru að nota við stjórnun breytinga í stórum samruna eða yfirtöku og hvernig er staðið að breytingaferlinu og framkvæmd þess við innleiðingu breytinga. Ályktanir eru síðan dregnar af þessu mati viðmælenda. \nHelstu niðurstöður eru þær að lykilatriði er að setja áætlun og stefnu í upphafi breytinga. Notast er að miklu eða öllu leyti við þekkingu og reynslu starfsfólks skipulagsheilda í breytingaferlum. Utanaðkomandi ráðgjöf er fengin í tilvikum sem snúa eingöngu að ákveðnum stöðum í breytingaferlinu en ekki ferlinu í heild sinni. Niðurstöður gefa til kynna að þær aðferðir sem notaðar eru við stjórnun breytinga í stórum skipulagsheildum samræmist að mörgu leyti kenningum og líkönum breytingastjórnunar þó svo að ekki hafi verið notast við ákveðna aðferð, aðferðafræði eða fræðimann á sviði breytingastjórnunar. Svo virðist sem ágætlega hafi verið staðið að framkvæmd breytingaferlanna og að innleiðing breytinga hafi tekist vel sé á heildina litið þó svo að einhverja hnökra sé alltaf að finna einhvers staðar á leiðinni í átt að breyttri framtíð skipulagsheildar.
Source: Skemman
Author: Vala Magnúsdóttir 1977
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071150671
Cites: 24
Cited by: 5
Related to: 10