Work

Starfsánægja innan Vinnslustöðvarinnar : treystir starfsfólk sínum næsta yfirmanni?

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að kanna áhuga starfsmanna VSV á starfsmannasamtölum og að skoða sambandið á milli starfsmanna og yfirmanna. Eins og staðan er í dag hjá fyrirtækinu þá fer starfsfólkið ekki í gegnum frammistöðumat og starfsmannasamtöl eru ekki á dagskrá. Í fyrirtæki eins og VSV fannst rannsakanda það athyglisvert, sérstaklega þar sem að í fyrirtækjarekstri er orðið algengt að haldin séu hefðbundin starfsmannasamtöl (Gylfi Dalman Aðalsteinsson, 2004). Áður en starfsmannasamtalið fer fram leggur yfirmaður fram eyðublað með helstu atriðum sem rætt verður um. Starfsmaður fær eyðublaðið að lágmarki viku fyrir samtal svo hann geti komið vel undirbúinn (Margrét Guðmundsdóttir, 1990). Starfsmannasamtöl geta aukið sambandið á milli starfsmanns og yfirmanns ef þau eru fagleg (Svanhildur Jónsdóttir, 2006). \nÍ þessari rannsókn var notast við megindlega aðferð þar sem spurningakönnun var send á stjórnendur innan VSV. Eigindleg aðferð var einnig notuð þar sem rannsakandi settist niður með einum af yfirmönnum VSV og ræddi við hann um efni verkefnisins. Tilgangurinn með því var að fá hans sjónarhorn á efninu, hvort hann hefði einhverja reynslu eða skoðun á viðfangsefninu. \nMiðað við þær niðurstöður sem komu út úr spurningakönnuninni virtust starfsmenn vera hlynntir starfsmannasamtölum og voru einnig frekar ánægðir með sinn yfirmann. Það er mikilvægt að starfsfólk geti treyst sínum yfirmanni og leitað til hans þegar þeim finnst þess þurfa. Miðað við svörun starfsmanna þá var það einna helst hvatningin sem þeim þótti ábótavant. Það er eitthvað sem ætti að vera auðvelt að laga að mati rannsakanda. \nRannsóknarspurningarnar sem rannsakandi leitaði eftir svörum við voru: \n \n\tHver er skoðun starfsfólks VSV á að fyrirtækið sé ekki með skipulögð starfsmannasamtöl? \n \n\tHvernig er næsti yfirmaður að standa sig að mati undirmanna?
Source: Skemman
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071160668
Cites: 65
Cited by:
Related to: 10