Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Ef farið er rétt með snjalltækin eru kostir þeirra margir. Snjalltækjanotkun unglinga eru orðin ein aðal samskiptaleið þeirra og fer ört vaxandi. Skjánotkun getur m.a. haft áhrif á svefnvenjur unglinga. Íslenskir unglingar sofa almennt minna en jafnaldrar í nágrannalöndum og margir uppfylla ekki viðmið um ráðlagðan svefntíma. \nMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða áhrif skjánotkun getur haft á svefn unglinga. Gögn sem unnið var með í þessari rannsókn miðast við nemendur í 7. og 9. bekk á Suðurnesjum. Við sjáum það á úrvinnslu gagna að skjátímanotkun fyrir svefn hefur neikvætt samband við svefnlengd. Niðurstöður okkar sýndu að notkun snjalltækja fyrir svefn tengist seinkun á svefntíma, minni svefnlengd og meiri þreytu daginn eftir. Misræmi er þó á milli niðurstaðna okkar og annarra rannsókna þegar litið er til tengsla þess að nota skjátæki rétt fyrir svefn og að ganga vel að sofna. Miklar þroskabreytingar eiga sér stað á unglingsárum og kemur sá munur fram á niðurstöðum á milli árganga. Afleiðingar svefnleysis geta verið margskonar og haft áhrif á daglegt líf unglingsins. Svefntruflanir af völdum hljóðs og ljóss frá snjalltækjum geta valdið ótímabærum vakningum. Mikilvægt er að fræða foreldra og unglinga um mikilvægi svefns og viðmið gagnvart skjánotkun. Með því að skapa heilbrigt samband við snjalltæki og góðar svefnvenjur getum við spornað við allskonar líkamlegum og andlegum vandamálum unglinga í dag.
Source: Skemman
Authors: Helena Rut Örvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Sylvía Briem Friðjónsdóttir, Bryndís Líf Eiríksdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071166337
