Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í þessari tíu eininga lokaritgerð til bakkalársgráðu í grunnskólakennslu er ætlun höfundar að skýra frá svokölluðum spunaspilum og kostum þess að notast við þau í kennslu. Farið verður yfir hvað spunaspil er og sýnt er fram á kennslufræðilegt gildi allra þeirra þátta sem mynda spilið, þ.e sögur, spuni og spil. Það er gert með því að tengja þá við rannsóknir og kenningar fræðimanna. Einnig eru færð rök fyrir því hvernig spunaspil geti sameinað alla þrjá áðurnefnda þætti, þau kynnt lesendum og fjallað um hvernig þau geta hjálpað til við upptöku þekkingar, skapandi hugsunar og áhuga á námsefni. Þá er einnig gerð sérstök grein fyrir því hvernig spunaspil hafa sýnt sig sem kjörið tæki til að hjálpa þeim nemendum sem eiga erfitt félagslega. Velt er upp hvernig tengja megi spunaspil við alla sex grunnþætti almenns hluta Aðalnámskrár Grunnskóla frá 2011 og einnig möguleikum þess að nota þau við sérgreinakennslu.
Source: Skemman
Author: Atli Steinn Árnason
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Literature and Literary Theory
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071205873
