Work

Skuggahliðar COVID-19 : áhrif COVID-19 á tíðni heimilisofbeldis á Íslandi

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Heimilisofbeldi er lýðheilsuvandamál um allan heim, þvert á menningarheima, trúarbrögð og samfélög. Fyrri rannsóknir benda til þess að á krísutímum eykst hættan á því að heimilisofbeldi eigi sér stað. Viðfangsefni þessarar B.A ritgerðar eru áhrif COVID-19 veirunnar á tíðni heimilisofbeldis á Íslandi í tengslum við þau sóttvarnarlög sem sett voru hér á landi. Notast var við blandaða eigindlega og megindlega aðferð en rannsóknin byggir á ársskýrslum frá Kvennaathvarfinu, Bjarkarhlíð og Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einnig voru tekin viðtöl við framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins sem og teymisstjóra Bjarkarhlíðar. Gögn fyrir árið 2020 voru borin saman við gögn fyrri ára til að fá heildarmynd af síðustu árum þegar kemur að bæði aðsókn í Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð, sem og útköll tengdum heimilisofbeldi sem lögreglan sinnti. Einnig voru tölurnar úr ársskýrslum bornar saman við COVID-19 tímalínuna á Íslandi. \nNiðurstöður benda til þess að heimilisofbeldi hafi aukist og að þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur heimilisofbeldis hafi reynt að aðlaga úrræði sín eins vel og hægt er að breyttum reglum vegna COVID-19 faraldursins. Hjá bæði Bjarkarhlíð og Kvennaathvarfinu fækkuðu komur í viðtöl á milli október og nóvember. Í október voru 86 viðtöl hjá Bjarkarhlíð en lækkaði niður í 69 í nóvember og úr 24 niður í 16 í Kvennaathvarfinu. Árið 2019 sinnti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu 475 útköllum vegna heimilisofbeldis en árið 2020 voru þau 574. Fyrstu mánuði 2020 voru 111 útköll en 2021 voru þau 155, og því 71,6% aukning. \nMikilvægt er að allir í samfélaginu, sem og ríkisstjórnir og heilbrigðiskerfi, séu meðvitaðir um einkenni og birtingarmyndir heimilisofbeldis. Nauðsynlegt er að bæta úrræði á þessu sviði og gera þau aðgengilegri fyrir einstaklinga sem eru innilokaðir með gerenda sínum vegna samkomutakmarkana eða af öðrum ástæðum. \n \n \nLykilhugtök: Heimilisofbeldi, COVID-19, birtingarmyndir ofbeldis, úrræði
Source: Skemman
Authors: Sonja Rún Magnúsdóttir, Hildur Katrín Óladóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071287971
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10