Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um starfshvatningu útsendra starfsmanna, einstaklinga sem eru tímabundið eða fastráðnir erlendis. Bæði er fjallað um útsenda starfsmenn á vegum fyrirtækja og einnig sjálfskipaða útsenda starfsmenn. Útsendir starfsmenn standa frammi fyrir einstökum áskorunum eins og menningarmun, tungumálahindrunum og vinnutengdri streitu. Með þessari heimildaritgerð eru skoðaðir hinir ýmsu þættir sem hafa áhrif á hvatningu útsenda starfsmenn, svo sem innri og ytri þættir, aðlögunin sjálf og kostnaðurinn við útsenda starfsmenn. Ritgerðin leiðir í ljós að bæði innri og ytri hvatning gegna mikilvægu hlutverki við að móta starfshvöt útsendra starfsmanna. Innri hvatning felur í sér persónulega ánægju svo sem starfsframa og tilfinningunni fyrir tilgangi. Ytri hvatningarþættirnir eru fjárhagslegir hvatar, atvinnuöryggi og viðurkenning. Ritgerðin skilgreinir einnig þrýsti- og togþætti sem hafa áhrif á ákvörðun útlendra starfsmanna að sækja vinnu út fyrir heimaland sitt og áhuga þeirra að upplifa nýja reynslu, menningarlega forvitni eða að flýja heimaland sitt. \nEnnfremur fjallar ritgerðin um mikilvægi aðlögunar og sérstaklega þvermenningarlegrar aðlögunar til að ná fram starfshvöt fyrir þessa starfsmenn. Árangursrík aðlögun og þvermenningarleg aðlögun bæði starfsmanna og fjölskyldu þeirra stuðlar að meiri starfsánægju og minni starfsmannaveltu. Skoðað er nánar mikilvægi jafnvægis á milli vinnu og einkalífs til að viðhalda starfshvöt fyrir starfsmenn. Að lokum er fjallað um kostnaðaráhættu við útsenda starfsmenn og hættuna sem fylgir því að þeir ljúki störfum fyrr en áætlað var. \nÁ heildina litið undirstrikar þessi ritgerð mikilvægi þess að skilja hina ýmsu þætti sem stuðla að starfshvatningu útsendra starfsmanna. Niðurstöðurnar hafa hagnýtar afleiðingar fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki og mannauðsstjóra sem leitast við að bæta starfsánægju og halda utanaðkomandi vinnuafli.
Source: Skemman
Author: Heiðrún Ósk Jóhannsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Communication
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: expatriate employees, expatriate stress, expatriate success factors, expatriate motivation, expatriate compensation, expatriate selection, cross-cultural adaptation (acculturation), language barriers, expatriate return, expatriate career development, expatriate training, expatriate performance, expatriate turnover, expatriate relocation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071402774
