Work

Stuðningur, kröfur og vald á starfi: Líðan starfsmanna í sérskólum Reykjavíkurborgar

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknin fjallar um líðan starfsmanna í sérskólum Reykjavíkur. Einkum er athuguð birting vinnutengds álags, upplifun starfsmanna á stuðningi frá starfsumhverfi sínu og yfirmönnum og einning möguleikum til eflingar í starfi. \nTekin voru átta viðtöl við starfsmenn í Brúarskóla og Klettaskóla, og eigindlegri aðferð beitt við greiningu og túlkun gagnanna. Hugtökin vellíðan og vinnutengt álag voru þungamiðja rannsóknarinnar. Athugað var hvort starfsmenn upplifðu vinnutengt álag í störfum sínum, hvaða áhrif slíkt álag hefði áhrif á vellíðan þeirra, og hvaða færni þyrfti í starfi sem gæti minnkað álagið. \nHelstu niðurstöðurnar voru þær, að starfsmennirnir upplifðu sig almennt gegna mikilvægu starfi sem jafnframt getur verið mjög krefjandi. Ef starfsmennirnir upplifðu sig ráða vel við starfsskyldur sínar, leið þeim yfirleitt vel í starfinu. Hins vegar upplifðu starfsmennirnir töluvert álag, ef þeim finnst þeir ekki geta brugðist nægilega vel við því sem gerðist í starfinu. Þeir treystu yfirleitt á að samstarfsmenn, stjórnendur og ráðgjafar væru sér til halds og trausts, bæði til að ákveða stefnu í málefnum nemanda og eins þegar þeir upplifðu andlegt og líkamlegt álag. \nHelstu afleiðingar þess að starfsmönnunum fannst þeir ekki valda starfinu voru að þeir fundu til óöryggis, að þeir voru oftar frá vinnu vegna veikinda, og að þeir fóru að íhuga að skipta um starf. Starfsmennirnir sögðu sig stundum finna til úrræðarleysis og að þeir sæu lítinn ávinning í starfinu. Aðalástæðan fyrir þessu virðist vera sú að þeir upplifi skort á úrræðum á starfssviði sínu innan skólaumhverfisins, og að skipulag, mönnun og aðbúnaður séu þar stór hindrun. \nStarfsmennirnir voru sammála um að mönnun starfa væri lykilatriði, bæði með tilliti til fjölda starfsmanna og færni, sem auk þess þarf að vera blanda af leyndri og ljósri færni. Starfsmennirnir telja hugræna atferlismótun vera ákjósanlega og áhrifaríka aðferð til að minnka neikvæð áhrif starfsins á einkalífið, og þeir telja að þannig geti þeir náð að hamla gegn þessum áhrifum og aðskilja vinnu og einkalíf.
Source: Skemman
Author: Ásdís Elva Pétursdóttir 1972
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071532027
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10