Work

Staða mannauðsmála hjá íslenskum stofnunum

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið verkefnisins var að athuga stöðu og helstu áhersluatriði mannauðsmála hjá íslenskum stofnunum. Athugað var hvernig tilhögun mannauðsmála er háttað, hvar helstu áherslur í grunnatriðum mannauðsstjórnunar liggja og atriði er varða stefnu í mannauðsmálum skoðuð. Spurningalisti var sendur á 147 stofnanir. Endanlega tóku 110 þátttakendur þátt í rannsókninni. \nMeginniðurstöður voru að yfirmenn mannauðsmála eru í flestum tilfellum vel menntaðar konur komnar yfir miðjan aldur. Umsjónarmaður mannauðsmála bar oftast titilinn forstjóri eða aðalframkvæmdastjóri (æðsti stjórnandi) og þar á eftir mannauðsstjóri. Samanlagt var umsjónarmaður þó oftast titlaður annað hvort starfsmanna- eða mannauðsstjóri. Þegar starfsmenn voru 50 eða fleiri bar umsjónarmaður langoftast titilinn mannauðsstjóri. Stöðugildi í mannauðsmálum voru oftast einn til tveir, óháð fjölda starfsmanna. \nÍ langflestum tilfellum var umsjónarmaður mannauðs í framkvæmdastjórn og margt bendir til þess að umsjónarmaður hafi mikil áhrif á stefnu stofnana í mannauðsmálum. Langflestar stofnanir voru með skráða mannauðsstefnu og eftir því sem starfsmenn voru fleiri var það enn líklegra. Stofnanir sem hafa skriflega mannauðsstefnu gæta vel að samræmingu hennar við heildarstefnuna. Umsjónarmaður mannauðsmála kom oftast mikið að þróun mannauðsstefnunnar. \nÁhersla á helstu grunnaðferðir mannauðsmála var yfirhöfuð mikil. Mest reyndist áherslan vera á faglegar ráðningar. Þar á eftir var áhersla á miðlun upplýsinga og fagleg starfslok. Takmörkuð áhersla var á frammistöðumat og minnsta áherslan var á hvatningu. \nÞeir umsjónarmenn sem áttu sæti í framkvæmdastjórn lögðu meiri áherslu á vinnustaðamenningu. Þeir sem lokið höfðu meistaranámi lögðu meiri áherslu á grunnaðferðir mannauðsstjórnunar heilt yfir, sér í lagi á starfsmannaveltu, hollustu og/eða ánægju starfsmanna og breytingarstjórnun. Þá lögðu stofnanir með fleiri starfsmenn meiri áherslu á ráðgjöf við stjórnendur. Hins vegar lögðu stofnanir með færri starfsmenn meiri áherslu á starfsmannaveltu, hollustu og/eða starfsánægju. \nÞegar umsjónarmaður bar titilinn mannauðsstjóri var lögð meiri áhersla á ráðgjöf við stjórnendur og á stefnumótun, samanborið við þegar æðsti stjórnandi var umsjónarmaður mannauðs. Einnig lögðu umsjónarmenn með titilinn mannauðsstjóri meiri áherslu á ráðgjöf við stjórnendur í samanburði við aðra stjórnendur eða annað fyrirkomulag á mannauðsmálum. \nÚt frá þessu má leiða líkur að því að fagleg mannauðsstjórnun sé við lýði í flestum íslenskum stofnunum. Margar vísbendingar koma fram um að stefnt sé að stefnumiðaðri mannauðsstjórnun. Helst er rúm til bætingar þegar kemur að frammistöðumati og hvatningu.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071539592
Cites: 77
Cited by: 4
Related to: 10