Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Tölvan er orðinn óumflýjanlegur hluti daglegs lífs og er notkun hennar stöðugt að aukast. Þeir sem uxu úr grasi við fingrasetningu í tölvustofum og fjölskyldutölvuna á ganginum taka eftir því að í hverri hönd, þeirra eigin meðtöldum er sími með aðgang að internetinu.\t\t\tFjöldi rannsókna hafa verið gerðar um áhrif mismunandi notkun snjalltækninnar. Margt hefur breyst í skólanum síðan tölvan kom fyrst inn í tölvustofuna með fingrasetninga þjálfun sína og sama er hægt að segja um heimilið og sameiginlegu tölvuna. Í þessari ritgerð verða umhverfi með gjörólíka reynslu barna á grunnskólaaldri af snjalltækninni skoðuð: Skólinn og heimilið. \t\t\t\t\t\t\t\t\t\t\tAthugað verður hvernig börnin nota snjalltæknina, hvaða áhrif sú notkun getur haft og hvað það getur þýtt fyrir börnin. Margar rannsóknir eru til sem hafa skoðað misjafna notkun snjalltækja og áhrif hennar sérstaklega, en lítið er um samanburðar rannsóknir varðandi misjafna snjalltækja notkun barna heima við og notkun þeirra í skólanum. Það er mín von að samanburður sá muni leiða í ljós mikilvægar ályktanir og niðurstöður sem hægt væri að læra af og nýta heima og í skóla. \t\t\t\t\t\t\t\t\t\tÞað er mikilvægt að athuga hvort það sé munur á skóla og heimili þegar kemur að tækninotkun einmitt vegna þess hve algeng tækninotkun er meðal barna. Á sama tíma og tækninotkun virðist hafa aukist, þá virðist andlegri vellíðan meðal barna hafi hrakað. Sem kennaranemi starfandi í grunnskóla get ég vel séð hvað snjalltæknin er vinsæl hjá nemendum. Þess vegna er mikilvægt að skoða vel allt sem hefur mögulega bæði jákvæð og neikvæð áhrif á börn og nýta niðurstöðurnar sem eru aðgengilegar til forvarna og öllum til umhugsunar.
Source: Skemman
Author: Viktor Örn Valdimarsson
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071542973
