Skóli án aðgreiningar og börn sem þurfa sérúrræði : staða barna með tilfinningavanda og námshamlanir inni í kennslustofunni
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Börn eru viðkvæm á ungum aldri og skólaumhverfið þarf að vera þeim öruggt umhverfi þar sem þau geta tjáð sig um líðan sína og þarfir. Til þess að allir geti stundað nám sitt á árangursríkan hátt þurfa allir aðilar að vera á sömu blaðsíðu með námsáætlun og einstaklingsbundnar þarfir nemenda. Hvorki nemendur né kennarar einir geta borið ábyrgð á öllum hliðum skólastarfsins, heldur þarf þetta að vera samvinna kennara, \nnemenda og heimila. Foreldrar þekkja börn sín og þarfir þeirra betur en nokkur annar og geta tjáð kennurum þarfir barna sinna þegar þau hafa ekki þroska eða vitneskju til að gera það sjálf. Þegar börn eru síðan komin með þroska til að taka þátt í ákvarðanatöku þá er kjörið að leyfa þeim að tjá skoðanir sínar. Skólinn er umhverfi þar sem allskonar nám á sér stað og þroskaferli barna fer að miklu leyti fram innan veggja skóla. Nám fyrir alla eða skóli án aðgreiningar er hugtak sem notað er til að lýsa skólum þar sem nemendur fá allir sömu tækifæri til að ná árangri í námi. \nTilgangur ritsins er til að athuga hvaða ábyrgð liggur hvar og hvaða aðstæður henta börnum með mismunandi vanda best í skólaumhverfinu. Höfundur telur það mikilvægt að athuga hvaða úrræði standa þessum einstaklingum og fjölskyldum til boða innan skólakerfisins. Hugmyndin kviknaði snemma í kennaranáminu hjá höfundi, þegar hann fór að mæta inn í ýmsa skóla til að fylgjast með kennslu. \nÍ þessu riti gerir höfundur grein fyrir hvaða úrræði standa börnum með tilfinningavanda og námshamlanir inni í kennslustofunni til boða og hvaða aðferðir er hægt að notast við, sem auðvelda nemendum, kennurum og foreldrum við námsaðstæður. Með þessu riti vonast höfundur til þess að varpa ljósi á líðan nemenda í skólum.
Source: Skemman
Author: Katrín Lóa Traustadóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: inclusive education, special educational needs, school-based intervention, parental involvement, student voice, student participation, student independence, student self-determination, student well-being, student motivation, student engagement, academic performance, student behavior, student relationships
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071591055
