Skjánotkun barna og ungmenna: Áhrif skjánotkunar á dægursveiflur og svefn - Fræðileg samantekt
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Börn og ungmenni nú til dags eru útsett fyrir mikilli notkun skjátækja. Rannsóknir hafa sýnt fram á neikvæðar afleiðingar skjánotkunar á þætti eins og dægursveiflur, heilsu, líðan og þroska barna. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk og forsjáraðilar barna hafi þekkingu á áhrifum skjánotkunar til að geta stuðlað að heilbrigðri notkun þessara tækja. \nRannsóknarsnið: Fræðileg samantekt. \nTilgangur: Markmið með þessari fræðilegu samantekt er að gera grein fyrir mögulegum áhrifum skjánotkunar á dægursveiflur og svefn barna og ungmenna. Höfundar binda vonir til þess að samantektin geti vakið áhuga og hvatt heilbrigðisstarfsfólk til gagnrýninnar hugsunar um að lágmarka skaðleg áhrif skjánotkunar á heilsu barna og ungmenna. \nAðferð: Við framkvæmd samantektarinnar voru niðurstöður teknar saman sem höfðu það sameiginlegt að fjalla um áhrif skjánotkunar á heilsu barna og ungmenna. Leit fór fram í gagnagrunnum PubMed og Google Scholar. Stuðst var við PRISMA-leiðbeiningar við uppsetningu leitarinnar. Heimildaleit markaðist af fræðilegum greinum um niðurstöður eigindlegra og megindlegra rannsókna frá árunum 2009-2023. Alls voru 18 af 19 rannsóknum yngri en fimm ára. \nNiðurstöður: Samtals uppfylldu 19 rannsóknir inntökuskilyrðin. Helstu niðurstöður rannsóknanna sýna að of mikil notkun skjátækja hefur neikvæð áhrif á heilsu og líðan barna og ungmenna. Blá ljós sem skjátæki gefa frá sér hefur meiri áhrif á börn en fullorðna. Þessi ljós seinka seytingu melatonins og hafa þannig áhrif á dægursveiflur barna. Því eldri sem börnin eru, því líklegri eru þau að eyða meiri tíma í skjátækjum og meiri líkur á að þau uppfylli ekki æskileg viðmið um svefntíma. \nÁlyktanir: Ljóst er að of mikil skjánotkun hefur neikvæð áhrif á dægursveiflur og svefn barna og unglinga. Fræðsla og samvinna milli foreldra, skóla og heilbrigðisstarfsfólks er undirstaða þessí að takast á við þessi vandamál og taka ákvarðanir sem stuðla að heilbrigðari skjánotkun \nLeitarorð: Börn, ungmenni, dægursveiflur, líðan, skjánotkun, svefn, þroski barna, blátt ljós.
Source: Skemman
Authors: Rebekka Hulda Gestsdóttir, Eva Þóra Hartmannsdóttir, Judith Ingibjörg Jóhannsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071626593
