Sýklalyfjaávísanir barna á aldrinum 0-4 ára hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á árunum 2016-2018
Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Eitt mesta afrek læknisfræðinnar er talið vera uppgötvun sýklalyfja en ekki leið þó á löngu áður en ónæmi kom fram í bakteríum sem ógnaði heilsu almennings. Í dag er ofnotkun og óskynsamleg notkun sýklalyfja ein helsta ástæðan fyrir þróun sýklalyfjaónæmis. Vorið 2017 fór Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) af stað með átak með það að markmiði að draga úr sýklalyfjanotkun barna á Íslandi. Aðalmarkmið þessarar rannsóknar var því að kanna hvort sýklalyfjanotkun barna 0-4 ára hafi dregist saman á rannsóknartímabilinu (2016-2018), sömuleiðis hvort lyfjamynstrið hafi breyst sem og ávísunarvenjur heimilislækna. \nEfniviður og aðferðir: Framkvæmd var lýsandi afturskyggn rannsókn þar sem notast var við megindlega aðferðafræði. Upplýsingar úr sjúkraskrá í Sögu-gagnagrunni HH voru fengnar til að afla upplýsinga um sýklalyfjaávísanir í flokki J01 til barna á aldrinum 0-4 ára og ICD-10 greiningar. Kí-kvaðrat-próf var notað til að meta hvort marktækur munur væri á fjölda sýklalyfjaávísana eftir mismunandi flokkabreytum og Quasi-poisson-dreifing var notuð til að meta þróun á fjölda sýklalyfjaávísana milli ára. Marktækni var skilgreind með 95% öryggi (p-gildi<0,05). \nNiðurstöður: Fjöldi sýklalyfjaávísana yfir rannsóknartímabilið var frá 263,6-289,6 ávísunum á hverja 1000 íbúa ári, og fækkaði ávísunum marktækt á árabilinu 2017-2018 (p = 1.6*10-7). Breiðvirk penicillín (J01 CA) voru yfir helmingur allra sýklalyfjaávísana. Fór notkun þeirra marktækt vaxandi milli ára (p = 2,2*10-16). Yfir helmingur allra sýklalyfjaávísana var vegna miðeyrnabólgu og þar á eftir vegna lungnabólgu og húðsýkingar. Marktæk aukning var á notkun breiðvirkra penicillína við miðeyrnabólgu (p = 2,2*10-16) og lungnabólgu (p = 3,9*10-9). Vegna húðsýkinga var cefalexin yfir helmingur ávísana, en ekki var um marktækan mun að ræða milli ára (p = 0,06). \nÁlyktanir: Ljóst er að sýklalyfjaávísunum fór fækkandi eftir að átak HH hófst og ávísunarvenjur heimilislækna breyttust. Samræmast þær breytingar nú að miklu leyti ráðlögðum leiðbeiningum, að undanskildum sýklalyfjaávísunum vegna berkjubólgu, hálsbólgu og vegna augnsýkinga.
Source: Skemman
Author: María Rún Gunnlaugsdóttir 1993-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Infectious Diseases
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071684017
