Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Talið er að um 40-70% fólks lendi í a.m.k. einu áfalli á lífsleiðinni og líkurnar á að það greinist með áfallastreituröskun í kjölfarið er á bilinu 6-7%. Afleiðingar áfallastreituröskunar eru alvarlegar og hún hefur tengsl við sjálfskaðandi hegðun, sjálfsvígshugsanir og vímuefnaneyslu en markmið þessarar rannsóknar var að skoða tengsl þessara þátta. Þátttakendur voru 198 háskólanemendur þar af 174 konur og 25 karlar á aldrinum 18-56 ára og eldri. Rannsóknarsniðið var lýsandi tíðni- og fylgnirannsókn þar sem athugað var hvort tíðni sjálfskaðandi hegðunar, sjálfsvígshugsana og vímuefnavanda væri hærri meðal þátttakenda sem upplifðu fleiri einkenni áfallastreituröskunar samanborið við þá sem upplifðu færri einkenni. Einnig var athugað hverskonar ástæður þátttakendur gáfu fyrir sjálfskaðandi hegðun sinni. Helstu niðurstöður voru að fjöldi einkenna áfallastreituröskunar var marktækt hærri hjá þátttakendum sem stunduðu sjálfskaðandi hegðun og upplifðu sjálfsvígshugsanir. Skoðun á áhrifastærðum leiddi í ljós að miðlungsmikill munur var á fjölda áfallastreitueinkenna milli þátttakenda sem stunduðu sjálfskaðandi hegðun og þeirra sem gerðu það ekki (Cohens´d = 5,7). Einnig var mikill munur á fjölda áfallastreitueinkenna milli þeirra sem höfðu upplifað sjálfsvígshugsanir á ævinni og þeirra sem höfðu það ekki (η2=0,20). Samanlagt skýrðu sjálfskaðandi hegðun og sjálfsvígshugsanir 12% af breytileikanum í fjölda áfallastreitueinkenna. Ekki fannst marktækur munur á fjölda áfallastreitueinkenna milli þeirra sem fengu fleiri stig í vímuefnavanda samanborið við þá sem fengu færri. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja við þá hugmyndafræði að sumir einstaklingar nota sjálfskaðandi hegðun sem bjargráð gegn einkennum áfallastreituröskunnar og að sjálfsvígshugsanir geti virkað sem flóttaleið frá þeim. Rannsóknir á samslætti áfallastreituröskunar við önnur geðræn vandamál eru þarfar svo að fagaðilar fái grundvöll byggðan á áreiðanlegum gögnum til að skima fyrir sjálfskaða og sjálfsvígshugsunum meðal einstaklinga með áfallastreituröskun. Mikilvægt er fyrir fagaðila að skilja hvaða virkni sjálfskaði og sjálfsvígshugsanir hafa fyrir einstaklinga til þess að veita viðeigandi meðferð.
Source: Skemman
Author: Pála Björk Kúld 1987
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071715441
