Work

Tengsl álags annarrar og þriðju vaktarinnar við lífsánægju, streitu og kulnun : velferð sambýlisfólks á Íslandi

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Í þessari ritgerð var fjallað um samband lífsánægu, streitu og kulnunar við álag heimilishalds sem telst til annarrar vaktarinnar og þá hugrænu byrði sem henni fylgir og kallast þriðja vaktin. Hugræna byrðin er íþyngjandi og í gagnkynja samböndum lendir hún frekar á konum. Streita og kulnun eru algengir fylgikvillar álags í starfi og lífi fólks og hefur margvísleg neikvæð heilsufarsleg áhrif. \n \nAðferð: Í ritgerðinni voru notuð gögn úr spurningakönnun sem var framkvæmd árið 2023 af Árna Gunnari Ásgeirssyni, Emmu E. Evudóttur og Berglindi Hólm Ragnarsdóttur. Þau rannsökuðu verkaskiptingu barnafjölskyldna á íslenskum heimilum. Auglýst var eftir þátttakendum í auglýsingu á Facebook, sambýlisfólki, giftu eða í sambúð sem ættu að minnsta kosti eitt barn á aldrinum 1-15 ára. Þátttakendur voru 596. Af þeim voru 41 par en þannig var hægt að sjá mismunandi túlkun sambýlinga á vægi þeirra á ýmsum heimilisverkum. Niðurstöður svarenda og velferð þeirra var sett í samhengi við álag af heimilisstörfum. Mæld var lífsánægja, streita og kulnun meðal þátttakanda og notast var við þrjá sjálfsmatskvarða: Satisfaction Of Life Scale, Copenhagen Burnout Inventory og Perceived Stress Scale. \n \nNiðurstöður og ályktanir: Álag af annarri vaktinni var það sem hafði hvað mest að segja í velferð fólks. Þriðja vaktin olli meiri streitu hjá konum en körlum þar sem þær sinntu henni að stórum hluta. Þessi ritgerð er framlag í umræðuna um mikilvægi jafnrar verkaskiptingar á heimilum fólks, þar sem báðir aðilar sinna launuðum störfum utan heimilis, með tilliti til andlegrar heilsu og endingar á vinnumarkaði. Koma þarf á kynjajöfnuði á heimilum ekki síður en á vinnumarkaði en það virðist haldast í hendur. Frekari rannsóknir á þriðju vaktinni og aukin vitundarvakning og þekking almennings gæti sett af stað áætlanir til þess að jafna stöðu kynjanna á heimilunum.
Source: Skemman
Author: Sædís Lind Másdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071742748
Cites: 26
Cited by:
Related to: 10