Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi rannsókn kannar samband á milli ákvörðunartöku og námsárangurs en hún beinist að atferlishagfræðilegu mælingunum tímaáhrif valhegðunar og eftirspurnar verkefninu. Almennt er samþykkt að mælingar á einstaklingsmun á tímaáhrifum valhegðunar sé hagnýt hegðunarleg mæling á hvatvísu vali. Tímaáhrif valhegðunar vísar til tilhneigingarinnar þegar einstaklingur gefur minni tafarlausri umbun meira gildi en stærri umbun seinna. Rótin í þessu er að ákvörðunin sem tekin er samræmist ekki hámarks umbun í framtíðinni. Rannsóknir hafa verið gerðar þar sem meiri tímaáhrif valhegðunar hafa verið tengd við mismunandi vanda, sem dæmi má nefna fíknisjúkdóma, áfengisvanda, spilafíkn og allskyns geðraskanir, þar á meðal taugaþroskaröskunina athyglisbrestur með ofvirkni. Í þessari rannsókn metur eftirspurnar verkefni vilja einstaklingsins við að leggja sig fram í lærdómi til að öðlast ákveðna lokaeinkunn í áfanga. Spurningarlistarnir voru lagðir fyrir 42 háskólanema, 33 nemendur voru í sjúkraþjálfun og 9 í sálfræði, lokaeinkunn þeirra var svo miðlað til rannsakanda með þeirra leyfi. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu ekki til kynna að tengsl væru á milli tímaáhrifar valhegðunar, eftirspurnar verkefnisins og lokaeinkunna. Þessi rannsókn er þó mikilvægur grunnur fyrir áframhaldandi rannsóknir á viðfangsefnunum en rannsóknin er sú fyrsta sem kannar tengsl þessara mælinga við námsárangur hérlendis. Rannsóknin er því mikilvægur liður í þróun atferlishagfræðilegra mælitækja á íslensku og við íslenskar aðstæður
Source: Skemman
Authors: Gísli Guðnason 1990-, Sigurbjörg Ósk Klörudóttir 1999-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: General Decision Sciences
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071769159
