Work

Tengsl líðanar við svartíma á tilfinningahlöðnum Stroop prófum

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi eru alvarlegar lyndisraskanir sem geta fylgt í kjölfar þungunar og barnsburðar. Rannsóknir hafa sýnt að allt að 10-15% nýbakaðra mæðra greinast með fæðingarþunglyndi. Ómeðhöndlað meðgöngu- og fæðingarþunglyndi getur haft gríðarleg áhrif á bæði móður og barn. Í dag eru nokkrar viðurkenndar leiðir notaðar til að skima fyrir fæðingarþunglyndi, meðal annars PHQ-9, PDSS og EPDS. Sjálfsmatskvarðar eru ef til vill ekki hentugir til skimunar fyrir meðgöngu- og fæðingarþunglyndi þar sem konur geta gert lítið úr þunglyndiseinkennum og þar af leiðandi svara þær ekki samkvæmt eigin líðan. Ef ekki er rétt staðið að skimun getur hún verið skaðleg fyrir konur og einungis helmingur þeirra sem þjást af þunglyndi fá viðeigandi aðstoð ef skimunin er ekki rétt framkvæmd. Því er mikilvægt að kanna hvort hægt sé að fara aðrar leiðir í skimun fyrir meðgöngu- og fæðingarþunglyndi. Rannsakendur hafa hannað hinar ýmsu útgáfur af Stroop prófum og ber þar helst að nefna svokallað tilfinningahlaðið Stroop próf en þar er markmiðið að kanna hvort að einstaklingar sem þjást af geðrænum kvillum séu með marktækt lengri eða styttri svartíma borið saman við einstaklinga sem ekki þjást af geðrænum kvillum. Mikilvægt er að huga að þáttum sem gætu haft áhrif á niðurstöður Stroop prófs og er hugræn virkni þáttur sem gæti ef til vill haft áhrif þar á, þ.e. kanna þarf hvort að Stroop próf sé næmt fyrir hugrænni virkni einstaklinga. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl líðan við svartíma á tilfinningahlöðnum Stroop prófum. Þátttakendur voru 21 einstaklingur, 5 karlar og 16 konur, á aldrinum 24-59 ára. Niðurstöður leiddu í ljós að samvirkni var marktæk (F(2,36) = 4,019, p = 0,027) þegar litið var til breytanna tegund Stroop og skor á þunglyndiskvarða, þeir sem skora hátt á þunglyndi truflast meira á neikvætt tilfinningahlöðnu Stroop prófi.
Source: Skemman
Authors: Ingibjörg Jóna Jakobsdóttir 1980, Áróra Sigurjónsdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071788843
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10