Work

Tungumál og heilabilun: Nýting íslenskra máltæknitóla í greiningu klínískra málsýna

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Alzheimersjúkdómur (AS) er algengasta orsök heilabilunar og veldur hrörnun á ólíkum svæðum heilans, einkum þeim sem stjórna tungumáli, minni og hugrænni getu. Breytingar á málnotkun, svo sem brotakennd setningagerð og orðminniserfiðleikar, geta verið meðal fyrstu einkenna sjúkdómsins. Snemmgreining slíkra breytinga er lykilatriði í að veita skjólstæðingum viðeigandi meðferð á fyrri stigum sjúkdómsins. Í þessu verkefni var kannað hvort íslensk máltæknitól, Greynir og ABLTagger 3.0, nýtist í greiningu á málfræðilegri uppbyggingu klínískra málsýna frá einstaklingum með einkenni AS. Rannsóknarspurningin var hvort íslensk máltæknitól geti nýst til greiningar á setningagerð klínískra málsýna. ABLTagger 3.0 sýndi framúrskarandi árangur með réttmæti yfir 95%, jafnvel þegar unnið var með óhefðbundnar setningar sem eru algengar í máli einstaklinga með AS. Greynir gagnaðist hins vegar takmarkað í þáttun setninga úr málsýnum og náði aðeins 40% rétt þáttaðra setninga. Með sjálfvirkri stöðlun texta, framkvæmt með ByT5 leiðréttingarlíkani, jókst réttmætið upp í 62%. Rannsóknin sýnir mikilvægi þess að þróa tungumálasértæk máltæknitól sem nýtast í klíníska málsýnagreiningu, sérstaklega fyrir smærri málsamfélög eins og hið íslenska. Slík tól geta gengt lykilhlutverki til að auðvelda snemmgreiningu taugahrörnunarsjúkdóma með því að greina breytingar á tali og málnotkun sem oft koma fram á fyrstu stigum sjúkdómsins. Með greiningu málsýna er ekki aðeins hægt að bæta greiningarferlið heldur einnig fylgjast með framgangi sjúkdóma á borð við AS. Sjálfvirknivæðing málsýnagreiningar gæti auk þess reynst mjög hagnýt í starfi þeirra sem nota málsýni klínískt, en það eru fyrst og fremst talmeinafræðingar. Þessar framfarir gætu því almennt haft jákvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga með AS og stuðlað að betri meðferðarúrræðum.
Source: Skemman
Author: Andrea Líf Erlendsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071873010
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10