Work

Tengsl ástvinamissis við heilsu á fullorðinsárum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Óumflýjanlegur þáttur tilverunnar er dauðinn og fátt sem undirbýr okkur undir þann djúpstæða sársauka og sorg sem fylgir því þegar einstaklingur missir einhvern sér nákominn. Aukaverkanir sorgarinnar geta verið af ýmsum toga, bæði andlega og líkamlega. Viðfangsefni og markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort tengsl séu á milli þess að missa maka, barn eða annan nákominn ættingja við heilsufarsvanda síðar á lífsleiðinni. Markmiðið er að varpa frekara ljósi á alvarleika sálrænna áfalla, afleiðingar og einkenni þeirra. Unnið var með gögn sem aflað var í rannsókninni Heilsa og líðan á Íslandi sem framkvæmd var af Embætti landlæknis árið 2022 og notuð til að varpa ljósi á þessi tengsl. Spurningalisti var lagður fyrir 20.000 þátttakendur 18 ára og eldri með á annað hundruð spurningum. Með spurningunum var verið að leita svara við mati fólks á andlegri og líkamlegri líðan sinni og áfallasögu þar sem missir var þáttur í þeirri erfiðu lífsreynslu. Helstu niðurstöður eru að þeir sem hafa misst náinn ættingja eru líklegri til að meta heilsu sína lélega. Þetta á sérstaklega við um konur. Þetta er í samræmi við fyrri rannsóknir og kenningar á þessu sviði. Rannsóknin sýnir í fyrsta skipti niðurstöður af þessu tagi fyrir svör sem safnað var árið 2022 og er þannig innlegg í upplýsta umfjöllun um málaflokkinn.
Source: Skemman
Author: Kristín Ólafsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071891915
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10