Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Mikilvægi starfsánægju ljósmæðra hefur verið staðfest í rannsóknum. Vísbendingar eru um að stjórnendur skipti sköpum hvað starfsánægju varðar og hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin bent á mikilvægt hlutverk stjórnenda til að tryggja gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu. Ljósmæður gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu við konur í barneignarferlinu alls staðar í heiminum og því afar brýnt að huga að ánægju þeirra í starfi. \nTilgangur: Tilgangur þessa verkefnis er að varpa ljósi á tengsl stjórnunar sem ljósmæður búa við og starfsánægju þeirra. \nAðferð: Um fræðilega samantekt með kögunarsniði er að ræða. Gerð var heimildaleit í gagnagrunnum CINAHL, PubMed, Scopus og Web of Science ásamt handvirkri leit í tímaritum um ljósmæður og stjórnun. Leit takmarkaðist við rannsóknir sem voru birtar 2010-2021. Notuð voru leitarorðin job satisfaction/job dissatisfaction, management, management style, leadership style, midwife, midwives og midwifery . \nNiðurstöður: Leit skilaði 639 heimildum. Eftir mat á heimildum stóðu eftir tíu rannsóknir sem uppfylltu inntökuskilyrði og voru notaðar í samantektinni. Fundin voru eftirfarandi þemu sem lýstu tengslum stjórnunar og starfsánægju ljósmæðra: 1) Starfsánægja ljósmæðra og einkenni stjórnenda; 2) Starfsánægja ljósmæðra og aðrir þættir og 3) Starfsánægja ljósmæðra og stjórnunarstíll. Samantektin leiddi í ljós að ýmsir þættir stjórnunar hafa tengsl við starfsánægju ljósmæðra. \nÁlyktun: Rannsóknirnar sem samantektin byggir á koma flestar frá Afríku og Ástralíu þar sem starfsánægja ljósmæðra hefur hlotið nokkra athygli. Niðurstöður samantektarinnar benda til þess að stjórnun og þættir tengdir stjórnun tengist marktækt starfsánægju ljósmæðra. Um marga mismunandi þætti er að ræða sem lúta að einkennum stjórnenda, stjórnunarstíl og öðrum þáttum í starfsumhverfinu. Gera þarf frekari rannsóknir á starfsánægju ljósmæðra og þætti stjórnunar í þeirri starfsánægju til að öðlast betri og dýpri skilning á þessum þáttum svo hægt sé að bregðast við í því miði að bæta starfsánægju ljósmæðra. \nLykilorð: Starfsánægja, ljósmóðir, stjórnandi, stjórnun, stjórnunarstíll.
Source: Skemman
Author: Guðrún Pálsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Research and Theory
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071893131
