Work

Uppruni jarðhitavatns í Vaðlaheiðargöngum. Mælingar á stöðugum samsætum súrefnis og vetnis

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Kraftmikið jarðhitakerfi fannst árið 2014 við gerð vegganga gegnum Vaðlaheiði við Eyjafjörð. Síðan þá hafa spurningar vaknað um uppruna heita vatnsins og möguleg tengsl þess við jarðhita annars staðar í Eyjafirði. Markmið þessa verkefnis er að meta uppruna heita vatnsins með mælingum á stöðugum samsætum súrefnis (δ18O) og vetnis (δD) og bera niðurstöður saman við fyrri rannsóknir á Eyjafjarðarsvæðinu. Sýnum var safnað sumarið 2015 og mældist hitastig þeirra frá 47,6°C til 63,0°C og fór hækkandi frá gangamunna við Eyjafjörð og inn eftir göngunum. Samsætumælingar á 15 sýnum voru framkvæmdar á massagreini Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands vorið 2016. Niðurstöður δ18O mælinganna lágu frá -13,10‰ til -13,34‰ (meðaltal: -13,22±0,07‰), en δD frá -93,84‰ til -96,79‰ (meðaltal: -94,99±0,92‰). Staðalfrávik meðaltalsgildanna er svipað mælióvissu og munur á hæstu og lægstu gildum því marktækur. Niðurstöður þessara mælinga sýna að heita vatnið úr Vaðalheiðargöngum er mun “léttara” (hærri mínustala) en staðarúrkoma (δD um -86‰), en svipað öðru jarðhitavatni úr Eyjafirði sunnan ganganna, t.d. Syðra Laugalandi (LA-12) og Hrafnagili (HG-10). Þess vegna er talið að uppruni þess sé sá sami og annars jarðhitavatns við sunnanverðan Eyjafjörð. Einnig hefur úrkoma sem nú fellur á fjalllendi syðst á Tröllaskaga, vestan Eyjafjarðar, svipuð samsætugildi. Víða um fjörðinn sunnanverðan finnst þó enn léttara jarðhitavatn, sem bendir til að jarðhitavatnið úr göngunum sé meira blandað staðarúrkomu en víða annars staðar.
Source: Skemman
Author: Benedikt Natanael Bjarnason 1992
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071950448
Cites: 30
Cited by: 1
Related to: 10