Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Tengslamyndun barns við umönnunaraðila er mikilvægur þáttur hvað varðar velferð barnsins. Unglingsmæður eru, af margvíslegum ástæðum, í aukinni hættu að mynda óörugg tengsl við börn sín. Óörugg tengslamyndun getur haft skaðleg langtímaáhrif á börn. \nTilgangur: Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að varpa ljósi á það hvernig unglingsmæður tengjast börnum sínum, hvers konar úrræði standa þeim til boða og hvaða úrræði unglingsmæður hafa í íslensku samfélagi. \nAðferð: Gerð var heimildaleit í gagnabönkunum Google Scholar, PubMed og Medline út frá ákveðnum lykilorðum. Gagnaleit miðaðist við aldurshópinn 15-19 ára og að heimildir væru aðallega frá tímabilinu 2005-2015. Aflað var tölulegra gagna úr erlendum og íslenskum gagnasöfnum. \nNiðurstöður: Tengslamyndun unglingsmæðra við börn sín er í mörgum tilfellum óörugg. Þær eiga erfiðara en eldri mæður með að aðlagast móðurhlutverkinu vegna vitsmuna-, félagslegs- og tilfinningaþroska sem ekki er enn fullmótaður. Viðeigandi stuðningsúrræði eru því nauðsynleg til að ýta undir örugg tengsl milli unglingsmæðra og barna þeirra. Stuðningurinn kemur oftast frá fjölskyldu unglingsmóðurinnar og þeim sem standa henni næst, en samfélagsleg stuðningsúrræði eru einnig mikilvæg. Erlendis hafa samfélagsleg úrræði verið mikið rannsökuð og niðurstöður sýna fram á að unglingavæn heilsugæsla, sérhannaðar deildir innan skólakerfisins fyrir unglingsmæður og jafningjastuðningur eru úrræði sem hafa reynst árangursrík. Samfélagsleg úrræði á Íslandi eru hins vegar fæst sérhönnuð fyrir unglingsmæður. \nÁlyktanir: Þörf er á frekari rannsóknum um stuðningsþarfir unglingsmæðra og vitundarvakningu í samfélaginu um mikilvægi tengslamyndunar barns við umönnunaraðila. Sérhönnuð samfélagsleg stuðningsúrræði hafa gagnast vel erlendis og gætu komið að góðum notum fyrir íslenskar unglingsmæður. Staða unglingsmæðra í samfélaginu er viðkvæm og einstaklingar sem starfa náið með unglingsmæðrum, sérstaklega heilbrigðisstarfsfólk, þurfa sérhæfða þjálfun í umönnun unglingsmæðra til að geta hugað vel að líðan þeirra og velferð. \n \nLykilorð: Unglingsmóðir, þroski, tengslamyndun, stuðningur, samfélagsleg úrræði
Source: Skemman
Authors: Eva Þórey Sigurðardóttir 1989, Elísabet Þóra Davíðsdóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7071970366
