„Við erum öll búin til úr stjörnuryki“ : starfendarannsókn á skapandi smiðjum á Listasafni Íslands
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er árangur starfendarannsóknar á listasmiðjum sem ég stýrði í Safnahúsinu við Hverfisgötu snemma árs 2023 og uppsetningu námsefnis tengdu smiðjunum. Smiðjurnar voru tvíþættar, fyrst leiðsagði ég nemendum um sýninguna og svo sköpuðu nemendur skuggabrúður og tóku upp stop-motion skuggaleikhús. Í rannsókninni minni spegla ég reynslu mína af kennslu í hefðbundnu skólaumhverfi við starf safnkennarans. Ég rýni í eigin kennsluaðferðir og skoða út frá fræðum inngildingar og heildrænnar nálgunar á menntun. \nSmiðjurnar voru þrjár og þátttakendur voru nemendur úr sjötta og sjöunda bekk í tveimur skólum í Reykjavík sem hlutu dulnefnin Asparskóli og Bjarkarskóli. Gögnum var safnað með hljóðupptökum og dagbókarfærslum. Niðurstaða starfendarannsóknarinnar er sú að samræðan er lykilþáttur í minni kennslu. Því sótti ég titil þessarar rannsóknar í samræður við nemanda í einni leiðsögninni. Ég legg mikla áherslu á gleði og að nemendum líði vel í minni umsjá. Í smiðjunum á safninu komu þessar áherslur fram í því að ég setti jákvæða reynslu nemendanna af safninu í forgang, fremur en þekkingaröflun eða framleiðni nemenda í skapandi smiðjum
Source: Skemman
Author: Ariana Katrín Katrínardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Visual Arts and Performing Arts
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072059197
