Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er lögð fram til BA-prófs í almennum málvísindum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Aðalviðfangsefni hennar eru tengsl lesblindu við hrynjandi í tali og tónlist. Lesblinda er þroskaröskun af taugafræðilegum toga og því þarf að líta til heilastarfsemi til þess að fá innsýn inn í af hverju röskunin stafar. Lesblinda er rakin til vandamála í hljóðkerfisþróun, og eru helstu einkenni hennar hægur og ónákvæmur lestur og skrift en erfitt er að ákvarða nákvæmlega hvað það er sem veldur hljóðkerfisvanda í lesblindu. Rannsóknum á lesblindu á sviði taugavísinda hefur fjölgað til muna síðastliðin ár og benda fjölmargar þeirra á áhugaverð tengsl skynjunar á hrynjandi í tali og lestrarhæfni. Einstaklingar með lesblindu virðast vera með lakari skynjun á hrynjandi í tali. Í ritgerðinni var leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Hver eru tengsl skynjunar á hrynjandi í tali við lesblindu? Hvernig hafa vandamál með hrynjandi í lesblindu verið útskýrð frá taugafræðilegu sjónarhorni? Einkennist lesblinda einnig af skertri skynjun á hrynjandi í tónlist? \nHelstu niðurstöður ritgerðarinnar voru að einstaklingar með lesblindu sýna skerta skynjun á atkvæðum og áherslum í tali, þ.e. hrynjandi, sem veldur ónákvæmri mynd af uppbyggingu tals og hljóðkerfislegum einingum þess. Hrynjandi er mikilvægur þáttur í máltökuferli barna og styðjast börn við hrynjandi til að átta sig á atkvæðastrúktúr móðurmáls síns. Vandamál með skynjun á hrynjandi má rekja til óskilvirkrar heilastarfsemi, nánar tiltekið slakrar samfösunar heilabylgja og ónákvæmrar hljóðrænnar úrvinnslu á bylgjuhjúp og ristímum í hljóði. Bylgjuhjúpurinn og ristímar geyma mikilvægar upplýsingar um smærri einingar talaðs máls, en einstaklingar með lesblindu virðast eiga sérstaklega erfitt með að skynja ákveðnar tíðnir (<10 Hz) í tali sem segja til um atkvæði og áherslur. Þau ferli sem fara af stað við úrvinnslu hrynjandi í tali eru sameiginleg með tónlist og sýna lesblindir einstaklingar einnig skerta skynjun á hrynjandi í tónlist. Vekur það vonir um að tónlistarþjálfun geti stuðlað að betri hljóðkerfisvitund og eflt lestrarfærni.
Source: Skemman
Author: Sandra Magný Hafsteinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072073515
