„Það er alltaf von“ Innri og ytri hindranir sem skapast geta vegna geðrænna vandkvæða
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á og auka skilning á hindrunum sem skapast geta vegna geðrænna vandkvæða og áhrifa þeirra á lífsgæði einstaklinga með geðræn vandkvæði. Jafnframt var markmið að kanna viðhorf einstaklinga með geðræn vandkvæði er snúa að þörfum á upplýsingum um hindranir. Eigindlegum rannsóknaraðferðum var beitt við vinnslu þessarar rannsóknar. Tekin voru tíu viðtöl. Við greiningu gagna komu í ljós fjögur þemu: Reynsla af innri og ytri hindrunum, stuðningur vegna hindrana, aðstoð, aðferðir og/eða lausnir til þess að draga úr hindrunum og afstaða til fræðslu og forvarna. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að hindranir geðrænna vandkvæða séu fjölbreyttar og hafi neikvæð áhrif á lífsgæði þátttakenda. Þær hindranir sem voru mest áberandi voru fordómar einstaklings gagnvart sjálfum sér, skömm, fordómar samfélagsins sem leiddu til hindrana fyrir einstakling á vinnumarkaði og þar með neikvæðum áhrifum á fjárhag. Þá voru aðgengi að þjónustu og félagsleg einangrun einnig áberandi hindranir. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að stuðningur og skilningur annarra skipti þátttakendur miklu máli, en þar getur félagsráðgjafi leikið stórt hlutverk. Ef litið er til aðstoðar, aðferða og lausna þátttakenda til þess að draga úr hindrunum má helst nefna eftirfarandi: Að halda í vonina, vera félagslega virkur, stunda jóga/hugleiðslu, tileinka sér valdeflingu ásamt því að leita eftir stuðningi við aðra einstaklinga í sömu sporum sem komnir eru lengra í bataferli. Rannsakandi dregur þá ályktun að þörf sé á aukinni fræðslu, forvörnum og snemmtækri íhlutun. Þátttakendur hefðu ekki einungis ávinning af aukinni fræðslu og forvörnum heldur væri það einnig ávinningur fyrir samfélagið í heild sinni. \nLykilorð: Geðræn vandkvæði, innri og ytri hindranir, lífsgæði, félagsráðgjöf.
Source: Skemman
Author: Þórunn Þórsdóttir 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072157086
