Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Samkvæmt greiningarviðmiðum Ameríska geðlæknafélagsins er fíkn skilgreind sem geðsjúkdómur. Uppfylla þarf ákveðin skilyrði til þess að fá greiningu. Í gegnum árin hafa orðið breytingar á skilgreiningu á fíkn og sjúkdómsvæðingin er tiltölulega nýtilkomin. Vegna þessara breytinga eru viðhorf til fíknar ekki þau sömu hjá öllum. \nTilgangur rannsóknarinnar var að skoða viðhorf ungs fólks til fíknar. Gögnum var \naflað með eigindlegri aðferð, þar sem átta ungmenni voru fengin til þess að taka þátt í umræðum í rýnihóp. Í rannsókninni var notað hentugleikaúrtak og voru þátttakendur á aldrinum 20-27 ára og hlutfall kynja var jafnt. \nMarkmið rannsóknarinnar var að taka stöðuna í samfélaginu til þessa málefnis \nþar sem okkur finnst mikilvægt að það verði vitundarvakning í sambandi við þetta tiltekna málefni. Það er hægt að nálgast það frá mörgum sjónarhornum og það ermikilvægt að öll séu þau tekin til athugunar áður en fólk dæmir fíkla sem veiklyndaeinstaklinga sem kjósi þennan lífsstíl. Margar rannsóknir hafa verið gerðar og kenningar settar fram um fíkn og hæði. Litið hefur verið til bæði líkamlegra og sálrænna þátta sem snerta fíkn svo sem heilastarfsemi og skilyrðingu. \nÍ umræðum í rannsókn okkar athugum við nokkra þætti sem varða þetta \nmálefni svo sem fordóma í garð fíkla, hvernig fólk verður háð efnum, ofbeldi tengt áfengis- og fíkniefnaneyslu og hvers vegna fólk byrjar aftur í neyslu eftir að hafa hætt. Þátttakendur höfðu mismunandi viðhorf til fíknar sem og mismunandi reynslu af áfengi og fíkniefnum. Meirihluti þátttakenda leit á fíkn sem sjúkdóm. Mörg góð sjónarhorn komu fram í umræðunum og var þar meðal annars rætt um hvort lögleiða ætti fíkniefni hér á landi eins og áfengi var lögleitt á sínum tíma. Eftir þessa rannsóknarvinnu höfum við séð að mikilvægt er að vitundarvakning verði í samfélaginu varðandi áfengis- og fíkniefnaneyslu til þess að hægt sé að veita viðkomandi einstaklingum viðeigandi þjónustu.
Source: Skemman
Authors: Steinunn Ýr Jónsdóttir 1989, Sigrún Ósk Jóhannsdóttir 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Psychology and Mental Health
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Reduced inequalities
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072176591
