Það læra börn sem fyrir þeim er haft: Áhrif ólíkra uppeldisaðferða og hlutverk félagsráðgjafa í uppeldi
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður fjallað um þær uppeldisaðferðir sem foreldrar nota og áhrif þessara mismunandi aðferða á börn og ungmenni. Farið verður yfir áhættuþætti tengda uppeldi barna og skoðað hvernig ólíkar uppeldisaðferðir geta haft áhrif á börn og ungmenni, jákvæð sem og neikvæð. Fjallað verður ítarlega um vistfræðikenningu Urie Bronfenbrenners, þar sem hann bendir á mikilvægi þess að þau kerfi sem umlykja börn vinni saman, þar sem hvert og eitt þessara kerfa geti haft mikil áhrif á daglegt líf þeirra. Ef veikleiki kemur fram í einu kerfi aukast líkur á að misbrestur verði og því er mikilvægt að stuðningur fáist frá öðrum kerfum til að draga úr þeirri áhættu. Einnig verður fjallað um kenningu Diönu Baumrind um mismunandi uppeldisaðferðir og áhrif þeirra á hegðun barna en þær eru: leiðandi (e. authoritative), skipandi (e. authoritarian), og eftirlátt uppeldi (e. permissive). Einnig verður skoðuð fjórða uppeldisaðferðin sem skilgreind var síðar af þeim Maccoby og Martin, sem er afskiptalaust uppeldi (e. neglectful). Markmið ritgerðarinnar var að skoða þróun uppeldis í gegnum tíðina ásamt því að fá nánari mynd af því hvaða verndandi þættir stuðla að jákvæðum uppvexti fyrir börn og ungmenni og hvaða uppeldisþættir auka líkur á áhættuþáttum. Rannsóknir hafa sýnt að leiðandi uppeldi er sú aðferð sem skilar hvað bestum árangri við uppeldi barna en hún ýtir undir jákvæða hegðun, góða félagslega færni og sjálfstraust barna og ungmenna, ásamt því að draga úr áhættuþáttum, líkt og áfengis- og vímuefnanotkun, ofbeldi og slakri sjálfsmynd. Einnig var horft til vinnu félagsráðgjafa með fjölskyldum og hvernig þeir geta stutt við fjölskyldur barna í tengslum við uppeldi þeirra. Félagsráðgjafar veita stuðning og aðstoð til þeirra barna sem lent hafa í erfiðum aðstæðum. Þeir hafa mikla þekkingu á úrræðum og þjónustu innan samfélagsins. Heildarsýn þeirra í málefnum barna og þekking þeirra á þeim kerfum sem umlykja barnið skipta gríðarlega miklu máli þegar kemur að árangursríku uppeldi. Með tilkomu farsældarlaganna hefur verið lögð aukin áhersla á grunnþjónustu í nánasta umhverfi barns. Lögunum er ætlað að tryggja að börn hafi aðgang að einstaklingsmiðaðri þjónustu og stuðningi þar sem farsæld þeirra er höfð að leiðarljósi.
Source: Skemman
Authors: Kolbrún María Garðarsdóttir, Kristbjörg Karen Björnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072258534
