Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Geðræn vandkvæði er ein helsta orsök heilsubrest um allan heim. Hjá flestum sem glíma við geðræn vandkvæði eru einkenni ekki það alvarleg að það trufli virkni í daglegu lífi. Einkenni geðrænna vandkvæða geta haft langvarandi neikvæð áhrif á einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Á síðustu árum hefur batahugmyndafræðin fengið sífellt meira vægi í meðferð geðrænna vandkvæða. Batamiðuð meðferð horfir á styrkleika einstaklingsins og vinnur að því að efla þátttöku hans í meðferðinni og er valdefling þáttur í þeirri meðferð. Forsenda þess að einstaklingar nái þeim markmiðum sem meðferðin leggur upp með er meðal annars að öðlast von og trú um að það sé hægt að ná bata. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna upplifun einstaklinga með geðræn vandkvæði á viðhorfi þeirra til meðferðar hjá Hugarafli og hvaða þættir í batamiðaðri hugmyndafræði Hugarafls þeir meta mikilvæga til að styðja þá til bata. Einnig verður kannað hvernig félagsráðgjafi getur komið að batameðferð fólks með geðræn vandkvæði. Rannsóknaraðferðin í þessari rannsókn er eigindleg og voru tekin viðtöl við átta viðmælendur sem hafa allir verið þátttakendur í meðferðarvinnu hjá Hugarafli um mislangt skeið. \nNiðurstöður sýna að flestir viðmælendur höfðu glímt við veikindi í langan tíma og þegið margskonar meðferð í opinbera heilbrigðiskerfinu með misjöfnum árangri. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að upplifun og reynsla viðmælenda af meðferð Hugarafls hafi verið jákvæð og mátti greina að góður árangur hefði náðst í átt að bata. Það sem viðmælendur mátu mikilvægast til að ná bata er jafningjastuðningur og valdefling. Þannig má segja að Hugarafl hafi með árangursríkum hætti innleitt hugmyndafræði batamiðaðrar meðferðar í starfsemi sína. \nLykilorð: Geðræn vandkvæði, bati, bataferlið, jafningjafræðsla, valdefling, geðheilbrigðisþjónusta og félagsráðgjöf.
Source: Skemman
Author: Guðrún Helle Hermannsdóttir 1965
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072335275
