Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Yndisferðamennska (e. slow tourism) er tiltölulega nýlegt hugtak í ferðamálafræði og fræðigreinum yfirleitt, upprunalega á hugtakið rætur að rekja til yndismatargerðar til níunda áratugarsins. Hugmyndafræði yndisferðamennsku beinist að því að draga úr hraða lífsins, auka upplifun ferðalags og umhverfisvitund, virkja tengsl við heimamenn og nýta staðbundnar samgöngur. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna „yndi“ hugmyndafræðina, þar sem fjallað verður um yndismatargerð, yndisborg, yndisferðamennsku og yndisferðalag. Varpað verður ljósi á hugtökin í sögulegu samhengi og skoðaðar ólíkar skoðanir fræðimanna og fjallað um örfá dæmi um staðbundin áhrif. Einnig er markmið að skoða yndishugtakið sem mögulegt mótvægi gegn loftslagsbreytingum og hvort megi líta á það sem leið til að sporna gegn óumhverfisvænum leiðum í ferðaþjónustu. Að lokum verður fjallað um hugtakið yndi í samhengi við ferðaþjónustu og staðbundin áhrif á mismunandi stöðum. Niðurstöður sýna ólíka sýn fræðimanna á hugtakið og eru áhrifin heldur jákvæð í löndum eins og á Íslandi, Kanada og Japan svo fáeinir staðir séu nefndir. Aðrir vildu þó meina að með inngöngu í samtök yndisborga hefði í för með sér fjölgun ferðamanna sem myndi auka hávaða og á hraðann í bænum. Í samhengi við loftslagsbreytingar er hægt að segja með vissu að það ætti að skoða yndishugmyndafræðina sem hluti af lausn eða sem valkost.
Source: Skemman
Authors: Andri Hermannsson 1989, Anton Vignir Guðjónsson 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: slow tourism, slow travel
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072350318
