Work

„Það var náttúrulega algjör glundroði fyrstu dagana“ Reynsla stjórnenda hjá Grindavíkurbæ af því að halda starfsemi gangandi í kjölfar rýmingar sveitarfélagsins

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þann 10. nóvember 2023 var neyðarstigi lýst yfir í Grindavíkurbæ og bærinn rýmdur. Um 3.800 íbúar yfirgáfu heimili sín og nær öll starfsemi innan bæjarmarkanna var lögð niður. Grindavíkurbær var einn af stærstu vinnustöðum bæjarins, þrátt fyrir rýmingu bar sveitarfélaginu skylda til að viðhalda lögbundinni þjónustu við íbúa og stjórnendur sveitarfélagsins fengu það verkefni að halda starfsemi sveitarfélagsins gangandi við erfiðar aðstæður. Við krísuaðstæður gegna stjórnendur mikilvægu hlutverki og það fellur í þeirra skaut að leiða starfsfólk og starfsemina í gegnum ófyrirséða atburði. Fáar rannsóknir liggja fyrir um reynslu stjórnenda við slíkar aðstæður og mikilvægt er að varpa ljósi á reynslu stjórnenda sveitarfélags á krísutímum. Markmið rannsóknarinnar er að skoða upplifun og reynslu stjórnenda Grindavíkurbæjar af því að halda starfsemi sveitarfélagsins gangandi í kjölfar rýmingar. Gerð var eigindleg rannsókn og var gögnum safnað í gegnum átta hálfstöðluð viðtöl við stjórnendur með mannaforráð hjá Grindavíkurbæ. Í viðtölunum var sérstaklega horft til þess hvaða hindrunum stjórnendur mættu, hvaða þætti þeir mátu hjálplega og hvaða aðferðir og áherslur reyndust \nstjórnendunum gagnlegar við að halda starfseminni gangandi. Gögnin voru greind með aðferð grundaðrar kenningar. Fram komu sjö þemu sem lýsa upplifun viðmælenda og sýna að stærstu hindranirnar voru óvissa í ýmsum myndum og erfiðar aðstæður starfsfólks. Félaglegur stuðningur jafningja og aðstoð ytri aðila reyndust viðmælendum hjálpleg til að halda starfsemi gangandi. Niðurstöðurnar sýna að áherslur viðmælenda við \nað halda starfsemi sveitarfélagsins gangandi voru einkum góð samskipti og gott upplýsingaflæði, stöðugt endurmat og aðlögun sem og markviss teymisvinna. \nNiðurstöðurnar eru í takt við stöðu þekkingar um krísustjórnun, áhrifaþætti vellíðanar á vinnustað og gildi bjargráða og jafningjastuðnings við krefjandi aðstæður. Niðurstöður rannsóknarinnar eru framlag til þekkingar um árangursríka stjórnun á krísutíma og geta \nhaft hagnýtt gildi fyrir stjórnendur og leiðtoga innan sveitarfélaga og víðar. \nLykilhugtök: Náttúruhamfarir, krísustjórnun, bjargráð, vellíðan á vinnustað,jafningjastuðningur
Source: Skemman
Author: Soffía Snædís Sveinsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072367485
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10