„Þess vegna ákvað ég að koma:“ Uppbygging samfélags filippseyskra innflytjenda á Íslandi, 1980–2025
Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Þessi rannsókn skoðar mótun samfélags Filippseyinga á Íslandi frá níunda áratug tuttugustu aldar og fram til dagsins í dag. Hér er stuðst við aðferðafræði munnlegrar sögu en þessi rannsókn byggir að miklu leyti á viðtölum við fjórar konur af filippseyskum ættum. Tvær þeirra, Emely Rós Paran og Daisy Caparida, fæddust á Filippseyjum og fluttu til Íslands en hinir viðmælendur mínir, Camille Anna Patriarca og Stella Stefánsdóttir, eru af annarri kynslóð filippseyskra innflytjenda á Íslandi. Brottflutningur Emely og Daisy er settur í samhengi við almenna þróun fólksflutninga frá Filippseyjum sem á rætur sínar að reka til einræðisstjórnar Ferdinands Marcosar (1972–1986). Veruleg fátækt sem stafaði af víðtækri spillingu leiddi til þess að margir Filippseyingar fluttu burt í leit að betra lífi annars staðar. Þeir flutningar voru auðveldaðir með tilurð stofnunar sem bar heitið Overseas Employment Development Board (OEDB), en hún sá til þess að mæta vaxandi eftirspurn eftir erlendu vinnuafli í Miðausturlöndum og í ýmsum ríkjum Suðaustur-Asíu. Breyttar forsendur í þessum ríkjum ollu því að fólksflutningar tóku sérstaklega kvenlega mynd á níunda áratugnum. Rannsóknin sýnir fram á hvernig keðjuflutningar fjölskyldumeðlima Emely var komið af stað stuttlega eftir komu hennar til Íslands árið 1987. Eftir að Emely hjálpaði fjölskyldumeðlimum sínum að koma til landsins hjálpuðu þeir öðrum í kjölfarið. Flutningur Daisy til Íslands er því hluti þessara keðjuflutninga því hún kom til landsins með aðstoð fjölskyldumeðlima hennar á Íslandi. Sterk fjölskyldutengsl höfðu mótandi áhrif á samfélag viðmælenda minna og sjálfsmynd annarrar kynslóðar filippseyskra innflytjenda þróaðist í samræmi við þessi tengsl. Sterkt og virkt samfélag Filippseyinga á Íslandi hefur leitt til þess að samskipti þeirra við hið íslenska samfélag hafa ekki verið mikil félagslega. Hér er einnig greint frá annarri bylgju filippseyskra innflytjenda en fólksflutningur frá Filippseyjum til Íslands tók kipp árið 2015 í kjölfar skorts á hjúkrunarfræðingum og vinnuafli á hjúkrunarheimilum. Rannsóknin dregur fram hvernig þessi hópur innflytjenda kom ár sinni fyrir borð og byggði upp sterkt samfélag á Íslandi auk þess að halda miklum tengslum við ættingja í heimalandinu. Sjálfur tilheyri ég þessu samfélagi og þekki þannig vel til mála innan þess og nýtti mér þá þekkingu við greiningu á viðfangsefninu.
Source: Skemman
Author: Kolbeinn Freyr Caparida Björnsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072447263
