„Þú getur sýnt fram á hæfni þína á ótrúlega mismunandi vegu“ : samþætting námsgreina í unglingadeild í einum skóla
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Í alþjóðlegri skólamálaumræðu hefur vegur þeirra sjónarmiða aukist, að menntun nútímans ætti að fela í sér að efla getu nemenda til að búa til og nota þekkingu í breytilegu samhengi og samsetningu. Samþætting námsgreina er ein leið til að mæta þessum sjónarmiðum. Markmið þessarar rannsóknar er að draga upp mynd af námi nemenda og starfi kennara í breyttum kennsluháttum með samþættingu námsgreina og skoða hvaða breytingar, ávinning og áskoranir samþættingin hefur falið í sér fyrir nám og kennslu. \nÍ rannsókninni er varpað ljósi á verkefni sem felur í sér samþættingu fjögurra námsgreina í tveimur elstu árgöngum grunnskóla eins á höfuðborgarsvæðinu. Hefðbundið kennsluskipulag með greinaskiptri stundaskrá hefur verið lagt til hliðar og námsgreinarnar alfarið samþættar í um það bil þriggja vikna löngum kennslulotum með áherslu á heildstætt, hæfnimiðað nám. Gerð var eigindleg tilviksrannsókn með hálf-opnum viðtölum. Tekin voru tvö einstaklingsviðtöl við kennarana fjóra sem starfa við samþættinguna og þrjú rýnihópviðtöl við nemendur 10. bekkjar, alls tólf nemendur. \nNiðurstöður sýna að nemendur upplifa á jákvæðan hátt aukna ábyrgð og sjálfstæði í náminu. Fjölbreytni í vinnulagi og aðferðum ásamt merkingarbærum verkefnum virðast höfða til áhuga nemenda. Samfellan sem fæst með auknum tíma gefur nemendum tækifæri til dýpkunar á viðfangsefnum og að taka þau jafnvel lengra en fyrirmæli segja til um. Aukin einstaklingsmiðun er einhver mesti ávinningur samþættingarinnar að mati kennara. Þeir lýsa jafnframt mikilli starfsþróun samfara umfangsmikilli breytingu á kennsluháttum. Umræða kennarateymisins snýst um kennslufræði og nám nemenda með það að markmiði að bæta eigið starf og nám nemenda. Helstu áskoranir snúa að málfræðiþætti íslenskunnar, verklegri náttúrufræði og lestri bóka. Almennt lýstu nemendur ánægju með samþættinguna en þau sjónarmið heyrðust hjá nokkrum að þeir söknuðu hefðbundinna kennsluhátta. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa ástæðu til að líta á samþættingu námsgreina sem raunhæfa nálgun við nám og kennslu til að svara kalli um menntun á 21. öld.
Source: Skemman
Author: Guðlaug Bjarnadóttir 1965
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7072572821
